Arnarklettur- SELD 16

310 - Borgarnes

Lýsing eignar

Nes fasteignasala ehf kynnir eignina:

Arnarklettur 16, 310 Borgarnes. Um er að ræða tveggja herbergja parhús byggt úr steinsteyptum einingum. Eignin er 71,3 fm að stærð samkvæmt skráningu HMS. 
 
Nánari lýsing: 
Gengið er inn í forstofu. Þar á vinstri hönd er þvottahús. Gengið er úr forstofu í skála, þaðan er gengið í eldhús, svefnherbergi, baðherbergi og stofu
 
Anddyri flísar á gólfi og fatahengi. 
Þvottahús epoxy á gólfum.  
Eldhús parket á gólfi, hvít sprautulökkuð innrétting, borðkrókur.  
Svefnherbergi  parket á gólfi rúmgóðir skápar. 
Baðherbergi  flísar á gólfi og veggjum að hluta.  Sturta og innrétting með spegli. 
Stofa er björt. Parket á gólfi og gengið um svalahurð út á hellulagða verönd með skjólveggjum. 

Eftirfarandi endurbætur hafa verið framkvæmdar:  Þak endurnýjað 2018, Nýjir gluggar og svalahurð í maí 2022. Baðherbergi endurnýjað 2013 og parket á stofu, skála, herbergi og eldhúsi. Ný blöndunatæki í eldhúsi og baði og húsið málað að utan 2023.
Neysluvatnslagnir eru upprunalegar og þarfnast endurnýjunar.
 
Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is. 
 
Kostnaður kaupanda: 
Stimpilgjald skv. 5. gr. laga nr. 138/2013 um stimpilgjald, 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% við fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila. 
Þinglýsingargjald kr. 2.700,- á hvert skjal. 
Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá. 
Engin umsýsluþóknun. 

Eigindi eignar

Tegund Par/Raðhús
Verð 43.500.000 ISK
Áhvílandi 0 ISK
Fasteignamat 36.800.000 ISK
Brunabótamat 40.750.000 ISK
Stærð 71.3 fermetrar
Herbergi 2
Svefnherbergi 1
Baðherbergi 1
Byggingarár 1984
Lyfta Nei
Bílskúr Nei
Garður Nei
Greiðslubyrði* ------ ISK
Útborgun** ------ ISK
Skráð 07.12.2024