Félagsheimilið Árblik

371 - Búðardalur (dreifbýli)

Lýsing eignar

Nes Fasteignasala kynnir eignina:

Félagsheimilið Árblik 371, Búðardalur.

Árblik er félagsheimili staðsett í Miðdölum, um 130 km frá Reykjavík og 14 km frá Búðardal. Húsið er vel stórt, á tveimur hæðum og fyrir utan það er að finna tjaldsvæði. Húsið er steinsteypt og var byggt í 2 áföngum 1981 og 1991. Jarðhæð er 384,9 fm, og kjallari 258,5 fm að stærð. Samtals stærð er 641,4 fm skv. skráningu HMS. Húsið stendur á c.a 4.8 hektara leigulóð í eigu Ríkisins. Kynding er með hitaveitu í eigu RARIK. Neysluvatn er tekið úr vottuðu vatsbóli á svæðinu.

Nánari lýsing:    
Á jarðhæð er anddyri, samkomusalur, 2x snyrtingar fyrir gesti og eldhús með tækjum.
Gengið er um steyptar tröppur niður í kjallara. Þar eru geymslur og rúmgóður salur. Einnig eru búningsherbergi með sturtum, 2 salerni og lítið eldhús sem hafa verið nýttar við þjónustu tjaldsvæðis.

Bílaplan er malarborið og gras er á lóðinni. Tjaldsvæði er skjólgott og afmarkað með trjágróðri, þar er losunar aðstaða fyrir ferðasalerni og rafmagnstenglar. 

Framsal á núgildandi lóðarleigusamningi er óheimil, kaupandi þarf því að gera nýjan lóðarleigusamning við Ríkiseignir. 

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 8650350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.

Kostnaður kaupanda:
Stimpilgjald skv. 5. gr. laga nr. 138/2013 um stimpilgjald, 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% við fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald kr. 2.700,- á hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá.
 

Eigindi eignar

Tegund Atvinnuhús
Verð 0 ISK
Áhvílandi 0 ISK
Fasteignamat 43.740.000 ISK
Brunabótamat 245.350.000 ISK
Stærð 643.40000152588 fermetrar
Herbergi 2
Svefnherbergi 0
Baðherbergi 0
Byggingarár 1981
Lyfta Nei
Bílskúr Nei
Garður
Greiðslubyrði* ------ ISK
Útborgun** ------ ISK
Skráð 07.04.2025