Raftahlíð 48

550 - Sauðárkrókur

Lýsing eignar

Nes fasteignasala kynnir eignina:

Raftahlíð 48, 550 Sauðárkróki.

Um er að ræða endaraðhús á 2 hæðum með 5 svefnherbergjum og innbyggðri bifreiðageymslu byggt 1981. Eignin er skráð samtals 233,2 fm skv. skráningu HMS, þar af er bifreiðageymsla 24,7 fm.  Eignin er vel staðsett í vinsælu hverfi í bænum.
 
Nánari lýsing:   

Bílaplanið og stétt er steypt með hitalögn og skjólveggjum. Þaðan er gengið í forstofu. Inn af forstofu er alrými sem samanstendur af holi, stofu, borðstofu og eldhúsi.  Úr holi er gengið í baðherbergi, hjónaherbergi og bílskúr. Steyptar, teppalagðar, tröppur eru úr holi á neðri hæð. Þar eru 4 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og leikherbergi sem er skráð sem geymsla.  Af neðri hæðinni er síðan gengið út á sólpall á baklóð. Sólarfilma í öllum gluggum.
 
Efri hæð:
Forstofa:
Flísalögð með fataskáp og spegli.
Hol: Rúmgott með parket á gólfi.
Eldhús: Rúmgóð innrétting frá trésmiðjunni Borg með stóru helluborði og gufugleypi. Innbyggð uppþvottavél í innréttingu og tvöfaldur bakarofn í innréttingu á vegg. Efri ofn nýtist einnig sem örbylgjuofn ef vill.
Stofa og borðstofa: Bjart og opið rými, parket á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Góð innrétting og vegghengt salerni.  Walk-in sturta með góðum tækjum. Lagnir fyrir gólfhita frá lagnagrind en ótengt.
Hjónaherbergi: Parket á gólfi og rúmgóðir skápar. Gengið er úr herberginu út á svalir sem snúa að baklóðinni.
Bílskúr: Er flísalagður og bílskúrshurð með rafmagnsopnun.
 
Neðri hæð:
Svefnálma: Parket á gólfi, sérinngangur út á sólpall..
Svefnherbergi: Eru 4. Parket á 3 herbergjum en flísar og gólfhiti á einu herbergi. 
Baðherbergi: Dúkur á gólfi, salerni, handlaug og sturta.
Geymsla: Nú nýtt sem leikherbergi er gluggalaust rými með flísar á gólfi og gólfhiti.
Þvottahús: Rúmgott en gluggalaust. Gólf er málað og þar er lagnagrind hússins.
Sólpallur: Er 70 fm með háum skjólveggjum og heitum potti.
 
Endurnýjun undanfarin ár:
Bílskúrshurð og útidyr er endurnýjað, gluggar og gler endurnýjað að hluta. Frárennslislagnir hafa verði endurnýjaðar frá stút og út í brunn og settur nýr brunnur. Skipt hefur verið um lagnagrind. Nýleg rafmagnstafla,  þriggja fasa rafmagn. Ljósleiðari og  Wi-fi samband í öllu húsinu. Hleðslustöð fyrir rafbíl er utan á húsinu og fylgir. Innandyra hefur verið endurnýjað baðherbergi á efri hæð, innihurðir og fataskápur og parket. Drenað og með
 
Hér er um rúmgóða eign að ræða á eftirsóttum stað.

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.

Nes fasteignasala tekur ekki umsýslugjald af kaupendum.
Kostnaður kaupanda:
Stimpilgjald skv. 5. gr. laga nr. 138/2013 um stimpilgjald, 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% við fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald kr. 2.700,- á hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá.
Engin umsýsluþóknun.

Eigindi eignar

Tegund Par/Raðhús
Verð 96.000.000 ISK
Áhvílandi 0 ISK
Fasteignamat 66.300.000 ISK
Brunabótamat 105.100.000 ISK
Stærð 233.20000076294 fermetrar
Herbergi 6
Svefnherbergi 5
Baðherbergi 2
Byggingarár 1981
Lyfta Nei
Bílskúr
Garður
Greiðslubyrði* ------ ISK
Útborgun** ------ ISK
Skráð 02.07.2025