Lýsing eignar
Eignin er seld með fyrirvara!
Nes fasteignasala ehf kynnir eignina:
Goðaborgir 3, íb. 103, 112 Reykjavík.
Um er að ræða tveggja herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi í fjölýlishúsi í Grafarvogi. Eignin er 64,2 fm að stærð skv. skráningu HMS, þar af geymsla 5,9 fm.
Fasteignamat fyrir 2026 er kr. 52.200.000.-
Eignin skiptist í forstofu, svefnherbergi, baðherbergi og alrými sem samanstendur af eldhúsi, stofu og borðstofu, ásamt sérgeymslu á sameignargangi.
Nánari lýsing:
Forstofa: Flísar á gólfi og fataskápur.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og hluta af vegg. Sturtuklefi, lítil baðinnrétting, salerni og handklæðaofn. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Svefnherbergi: Bjart og rúmgott með tvöföldum fataskáp. Parket á gólfi.
Eldhús: Upprunaleg innrétting með góðu skápaplássi, uppþvottavél, bakaraofn og helluborð. Parket á gólfi.
Stofa: Björt og rúmgóð, útgengt á lóð. Parket á gólfi.
Geymsla: Er á sameignargangi. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er á sameignargangi.
Um er að ræða mjög vel skipulagða eign í grónu hverfi.
Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.
Nes fasteignasala tekur ekki umsýslugjald af kaupendum.
Kostnaður kaupanda:
Stimpilgjald skv. 5. gr. laga nr. 138/2013 um stimpilgjald, 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% við fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald kr. 2.700,- á hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá.
Engin umsýsluþóknun.
Eigindi eignar
Tegund | Fjölbýli |
Verð | 53.000.000 ISK |
Áhvílandi | 0 ISK |
Fasteignamat | 48.350.000 ISK |
Brunabótamat | 30.750.000 ISK |
Stærð | 64.2 fermetrar |
Herbergi | 2 |
Svefnherbergi | 1 |
Baðherbergi | 1 |
Byggingarár | 1996 |
Lyfta | Nei |
Bílskúr | Nei |
Garður | Já |
Skráð | 27.06.2025 |