Lýsing eignar
Nes fasteignasala kynnir eignina:
Lækjarhvammur 20, 370 Búðadal.
Um er að ræða þriggja herbergja parhús byggt úr timbri árið 2006. Eignin er 70.3 fm að stærð skv. skráningu HMS.
Nánari lýsing:
Gengið er í forstofu. Þar innaf er alrými sem samanstendur af eldhúsi og stofu. Úr alrými er gengið í 2 svefnherbergi (annað skráð sem geymsla) og baðherbergi. Gengt er úr stofu út á lóðina. íbúðin er vel umgengin.
Forstofa: Flísar á gólfi og fataskápur.
Stofa: Flísar á gólfi og gengt út á baklóð, lítill sólpallur.
Eldhús: Flísar á gólfi, snyritileg innrétting með helluborð, bakarofn og stæði fyrir uppþvottavél.
Svefnherbergi: Flísar á gólfi og fataskápar.
Baðherbergi: Er flísar í hólf og gólf. Baðkar og innrétting. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Bílaplan er malarborið, lítil hellulögð stétt við útidyr og grasflöt á lóðinni. Íbúðin er nýmáluð.
Búðardalur er þéttbýli í vexti sem býður upp á alla almenna þjónustu. Þar er nú glæsileg íþróttamiðstöð í byggingu.
Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.
Nes fasteignasala tekur ekki umsýslugjald af kaupendum.
Kostnaður kaupanda:
Stimpilgjald skv. 5. gr. laga nr. 138/2013 um stimpilgjald, 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% við fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald kr. 2.700,- á hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá.
Engin umsýsluþóknun.
Eigindi eignar
Tegund | Par/Raðhús |
Verð | 27.500.000 ISK |
Áhvílandi | 0 ISK |
Fasteignamat | 22.250.000 ISK |
Brunabótamat | 33.700.000 ISK |
Stærð | 70.3 fermetrar |
Herbergi | 3 |
Svefnherbergi | 2 |
Baðherbergi | 1 |
Byggingarár | 2006 |
Lyfta | Nei |
Bílskúr | Nei |
Garður | Já |
Skráð | 08.07.2025 |