Eyrarskógur 83

301 - Akranes (dreifbýli)

Lýsing eignar

Nes fasteignasala ehf kynnir eignina:

Eyrarskógur 83, 301 Akranes. Um er að ræða 45,2 fm sumarhús byggt 1995 sem stendur á 6700.0 fm leigulóð úr landi Eyrar í Svínadal. Húsið er úr timbri og  panelklætt að utan. Við húsið er ágætur sólpallur ásamt skjólveggjum. Húsið er kynt með rafmagni og er hitakútur fyrir neysluvatn.
Sumarhúsið er vel staðsett á gróinni og vel hirtri lóð. Þar er lítill stakstæður kofi sem nýta má sem leikkofa eða geymslu.

Nánari lýsing:
Húsið skiptist í anddyri með fataskáp, alrými, sem er setustofa og eldhús, 2 herbergi og baðherbergi með sturtu. Að auki er svefnloft yfir hluta hússins. Húsið er innréttað með panelklæðningu á veggjum og í lofti en pressaðar spónaplötur eru á gólfi. Eldhúsinnrétting er timbur og í góðu ástandi. 

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.

Nes fasteignasala tekur ekki umsýslugjald af kaupendum.
Kostnaður kaupanda:
Stimpilgjald skv. 5. gr. laga nr. 138/2013 um stimpilgjald, 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% við fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald kr. 2.700,- á hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá.
Engin umsýsluþóknun.

Eigindi eignar

Tegund Sumarhús
Verð 28.900.000 ISK
Áhvílandi 0 ISK
Fasteignamat 21.250.000 ISK
Brunabótamat 26.500.000 ISK
Stærð 45.2 fermetrar
Herbergi 3
Svefnherbergi 0
Baðherbergi 0
Byggingarár 1995
Lyfta Nei
Bílskúr Nei
Garður Nei
Greiðslubyrði* ------ ISK
Útborgun** ------ ISK
Skráð 29.07.2025