Lýsing eignar
Nes fasteignasala ehf. kynnir eignina:
Arnarklettur 32, 310 Borgarnes.
Um er að ræða 3 herbergja 78,2 fm íbúð merkt 304 á 3. hæð í mjög góðu lyftuhúsi með sérinngangi af svölum. Íbúðin er með tveim svefnherbergjum en geymsla innaf forstofu er með glugga og opnanlegu fagi og getur nýst sem lítið svefnherbergi.
Nánari lýsing:
Íbúðin skiptist í forstofu, geymslu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og alrými sem samanstendur af eldhúsi, borðstofu og stofu.
Lítið sérgeymsla, utan skráðra fermetra, er á sameignargangi.
Forstofa flísar á gólfi, fatahengi.
Geymsla parket á gólfi og skápur.
Herbergi eru með parket á gólfum. Fataskápur á heilum vegg í hjónaherbergi.
Baðherbergi er rúmgott, flísalagt í hólf og gólf með góðri innréttingu og sturtu. Ágætt skápapláss og vegghengt salerni.
Þvottahús er flísalagt með hillum.
Eldhús góð innrétting er í eldhúsi, ágætt skápapláss og góð vinnuaðstaða. Electrolux tæki – ofn í vinnuhæð, spanhella og háfur.
Stofa parket á gólfum, björt og rúmgóð. Gengið er úr stofu út á svalir. Mikið og fallegt útsýni úr stofu og af svölum.
Íbúðinni fylgir sér geymsla og hlutdeild í sameiginlegri hjólageymslu á jarðhæð. Sameiginleg hleðslustöð er fyrir rafmagnsbifreiðar á bílastæði.
Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is
Nes fasteignasala ehf. Borgarbraut 57, Borgarnesi.
Nes fasteignasala tekur ekki umsýslugjald af kaupendum.
Kostnaður kaupanda:
Stimpilgjald skv. 5. gr. laga nr. 138/2013 um stimpilgjald, 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% við fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald kr. 3.800,- á hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá.
Engin umsýsluþóknun.
Eigindi eignar
| Tegund | Fjölbýli |
| Verð | 53.900.000 ISK |
| Áhvílandi | 0 ISK |
| Fasteignamat | 43.750.000 ISK |
| Brunabótamat | 48.600.000 ISK |
| Stærð | 78.2 fermetrar |
| Herbergi | 3 |
| Svefnherbergi | 2 |
| Baðherbergi | 1 |
| Byggingarár | 2012 |
| Lyfta | Já |
| Bílskúr | Nei |
| Garður | Nei |
| Skráð | 30.03.2026 |








































