Hamrar

371 - Búðardalur (dreifbýli)

Lýsing eignar

Nes fasteignasala kynnir í einkasölu eignina:

Hamrar í Haukadal, 371 Búðardal. 

Um er að ræða fallega jörð í Haukadal þar sem nú er rekinn sauðfjárbúskapur.  Jörðin selst ásamt allri áhöfn.

Jörðin Hamrar eru í ofanverðum Haukadal, sunnan við Haukadalsá efri. Er talið að bærinn dragi nafn sitt af þverhníptum hömrum fyrir ofan bæinn.  Fallegt umhverfi með mikla möguleika og útsýni.

Hamrar eru landstór jörð  um það bil 1050 ha að stærð (gróf mæling skv. Nytjaland.is)) Land jarðarinnar liggur frá Haukadalsá og suður á mikið fjalllendi, Hamrafjall. Þar inná eru Skálagil og Skáladalur. Næstu jarðir eru Jörvi að vestan en Mjóaból að austan. Norðan Haukadalsár er svo jörðin Núpur. Fyrstu heimildir um Hamra er að finna  í jarðasölubréfi frá 1541 en þá kemst jörðin í eigu Daða Guðmundssonar í Snóksdal.

Á Hömrum er nú búið með sauðfé og er greiðslumark jarðarinnar 395,7 ærgildi. Tún jarðarinnar er 18,7 ha að stærð samkvæmt skráningu HMS.  Rjúpnaveiði er á fjalllendi jarðarinnar og veiðiréttur í Haukadalsá. Neysluvatn er tekið úr brunni á landareigninni.  Á jörðinni er friðlýst náttúruvætti sem nefnist Saltadý og er uppspretta framan við bæinn. Í rennsli uppsprettunnar er salt sem sest á steina og sækja skepnur mjög í það.

Helstu byggingar á jörðinni:                                                                                        
Einbýlishús 135,30 fm að stærð á 2 hæðum byggt 1945.  Á neðri hæð  eru forstofa, hol, stofa, eldhús með góðri innréttingu og borðkrók, þvottahús,geymsla og baðherbergi með sturtu.  Á efri hæð eru 3 herbergi og snyrting. Parket á gólfum utan votrýma. 
Húsið er nokkuð endurnýjað: Klæðning á húsi endurnýjuð  1980.  Skipt um þakefni  2003-2004. Gluggar á neðri hæði endurnýjaðir 2015 og gluggar á efri hæðinni og útihurðir 2020-21. Vatnslagnir og ofnakerfi endurnýjað 2007. Þá var baðherbergi endurnýjað 2010.
Við húsið er ágætur sólpallur með skjólveggnum.

Fjárhús með áburðarkjallara  byggt 1981. Stálgrindarhús með steyptum kjallara 285 fm að stærð. Grindur í gólfi, endurnýjaðar 2011, og einangrað þak.
Hlaða byggð 1982. Klædd stálgrind með steyptu gólfi, 178 fm að stærð.
 
Eldri byggingar
Fjós byggt 1957 og  fjárhús  byggt 1960 ásamt sambyggðum hlöðum.  Byggingar sem nýttar eru sem verkstæði og  geymslur.
 
Hér er um mjög áhugaverða jörð að ræða sem býður upp á möguleiki í ferðamennsku svo sem rjúpnaveiði, og þá eru Skálagil, Bæjargil og Stekkjargil vinsælir staðir til að stunda  ísklifur um vetur.

Listi yfir bústofn og tæki sem fylgja með jörðinni liggur fyrir. Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson Lögg. fasteignasali, í síma 8650350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.

Eigindi eignar

Tegund Jörð/Lóð
Verð 120.000.000 ISK
Áhvílandi 0 ISK
Fasteignamat 40.607.000 ISK
Brunabótamat 165.450.000 ISK
Stærð 187953.70000839 fermetrar
Herbergi 0
Svefnherbergi 0
Baðherbergi 0
Byggingarár 0
Lyfta Nei
Bílskúr Nei
Garður Nei
Greiðslubyrði* ------ ISK
Útborgun** ------ ISK
Skráð 24.04.2026