Reykjatangi lóð

500 - Staður

Lýsing eignar

Nes fasteignasala kynnir fasteignina:

Reykjatangi lóð, 500 Húnaþing vestra.
Um er að ræða steinsteypt einbýlishús á einni hæð með bílskúr byggt 1971. Eignin er 179 fm að stærð skv. skráningu HMS, þar af er bílskúr 32,70 fm. 
Húsið stendur á 1.050 fm leigulóð í skólahverfinu að Reykjum í Hrútafirði.

Nánari lýsing                                                                                                                                                                              
Húsið skiptist í forstofu, samliggjandi stofur,  eldhús, 5 rúmgóð herbergi, baðherbergi, snyrtingu og þvottahús með búr innaf. Gengið er úr einu herbergi, þvottahúsi og stofu út á lóðina. Lítill sólpallur er við stofu.
 
Húsið varð fyrir heitavatnstjóni og þarfnast nánast gagngerrar endurnýjunar að innan, utan þess að baðherbergi er endurnýjað. Ytra byrði hússins þarfnast lagfæringar og þakefni virðist upprunalegt og farið að láta á sjá.
 
Steypa í bílskúr er illa farin en bílskúrshurð virðist í lagi.
 
Áhugasömum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand eignarinnar.

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.

Nes fasteignasala tekur ekki umsýslugjald af kaupendum.
Kostnaður kaupanda:
Stimpilgjald skv. 5. gr. laga nr. 138/2013 um stimpilgjald, 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% við fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald kr. 3.800,- á hvert skjal.
Skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati þegar það er lagt á.
Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá.
Engin umsýsluþóknun.

Eigindi eignar

Tegund Einbýli
Verð 0 ISK
Áhvílandi 0 ISK
Fasteignamat 44.350.000 ISK
Brunabótamat 95.000.000 ISK
Stærð 179.00000076294 fermetrar
Herbergi 6
Svefnherbergi 5
Baðherbergi 2
Byggingarár 1971
Lyfta Nei
Bílskúr
Garður
Greiðslubyrði* ------ ISK
Útborgun** ------ ISK
Skráð 28.05.2026