Múlabyggð 21

311 - Borgarnes (dreifbýli)

Lýsing eignar

Nes fasteignasala kynnir eigninga:

Múlabyggð 21, 311 Borgarbyggð.

Um er að ræða mikið endurnýjaðan sumarbústað úr timbri, 46.70 fm að stærð skv. skráningu HMS auk stakstæðrar geymslu sem er fyrir utan skráða fermetra. Húsið er byggt árið 1990 og stendur á 5.300 fm leigulóð úr landi jarðarinnar Grímsstaða.
Húsið er úr timbri og panelklætt að utan. Við húsið er ágætur sólpallur ásamt skjólveggjum. Húsið er kynt með rafmagni, nýleg varmadæla loft í loft og hitakútur fyrir neysluvatn.
Sumarhúsið er vel staðsett á gróinni og vel hirtri lóð.

Nánari lýsing:
Húsið skiptist í forstofu, 3 herbergi, alrými, sem er setustofa og eldhús og baðherbergi með sturtu. Að auki er svefnloft yfir hluta hússins. Húsið er innréttað með panelklæðningu á veggjum og í lofti en pressaðar spónaplötur eru á gólfi. Eldhúsinnrétting var endurnýjuð fyrir um 10 árum og er í góðu ástandi. 
 
Bústaðurinn er nýlega málaður með smekklegum hætti og sólpallur endurbyggður fyrir um 10 árum. Vatn er hitað með gegnumstreymishitara.  

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.

Nes fasteignasala tekur ekki umsýslugjald af kaupendum.
Kostnaður kaupanda:
Stimpilgjald skv. 5. gr. laga nr. 138/2013 um stimpilgjald, 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% við fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald kr. 3.800,- á hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá.
Engin umsýsluþóknun.

Eigindi eignar

Tegund Sumarhús
Verð 29.900.000 ISK
Áhvílandi 0 ISK
Fasteignamat 23.350.000 ISK
Brunabótamat 21.700.000 ISK
Stærð 46.7 fermetrar
Herbergi 4
Svefnherbergi 3
Baðherbergi 1
Byggingarár 1990
Lyfta Nei
Bílskúr Nei
Garður
Greiðslubyrði* ------ ISK
Útborgun** ------ ISK
Skráð 29.05.2026