Miðháls 19

311 - Borgarnes (dreifbýli)

Lýsing eignar

Nes fasteignasala kynnir eignina:
 
Miðháls 19, 311 Borgarbyggð.

Um er að ræða sumarhús á tveimur hæðum á 5.000 fm leigulóð í Hálsabyggð, skipulagðri sumarhúsahverfi úr landi Laufáss skammt vestur af Borgarnesi. Húsið er nýlega endurnýjað að innan með smekklegum hætti.
Húsið er 88.3 fm að stærð skv. skráningu HMS, byggt 2006, úr timbri og klætt liggjandi timburklæðningu að utan. Varmadæla loft í loft og hitakútur fyrir neysluvatn. Við húsið er ágætur sólpallur ásamt skjólveggjum.

 
Nánari lýsing:
Neðri hæð: Hæðin skiptist í forstofu, geymslu, 2 herbergibaðherbergi með sturtuklefa, innréttingu og tengi fyrir þvottavél og alrými sem samanstendur af stofu/borðstofu og eldhúsi með góðri innréttingu. Gengt út á sólpall úr stofu. 
Efri hæð: Stigi í forstofu upp á efri hæð, þar er gott opið rými á stigapalli og svefnloft sem skipt er í tvö svefnrými. 
Sólpallur: Með þremur hliðum hússins, búið er að byggja verkfærageymslu yfir hluta pallsins, útgengt út í þann hluta úr geymslu.
Lóðin er gróin með miklum trjágróðri.

Sumarhúsið er vel staðsett í um klukkustundar fjarlægð frá Reykjavík. 

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.

Nes fasteignasala tekur ekki umsýslugjald af kaupendum.
Kostnaður kaupanda:
Stimpilgjald skv. 5. gr. laga nr. 138/2013 um stimpilgjald, 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% við fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald kr. 3.800,- á hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá.
Engin umsýsluþóknun.

Eigindi eignar

Tegund Sumarhús
Verð 56.500.000 ISK
Áhvílandi 0 ISK
Fasteignamat 43.350.000 ISK
Brunabótamat 50.150.000 ISK
Stærð 88.3 fermetrar
Herbergi 4
Svefnherbergi 3
Baðherbergi 1
Byggingarár 2006
Lyfta Nei
Bílskúr Nei
Garður
Greiðslubyrði* ------ ISK
Útborgun** ------ ISK
Skráð 23.06.2026