Lýsing eignar
Nes fasteignasala kynnir eignina:
Þorsteinsgata 6, 310 Borgarnes.
Um er að ræða reisulegt og fallegt steinsteypt einbýlishús á 2 hæðum ásamt innbyggðum bílskúr. Húsið var byggt 1965 og er 164,0 fm að stærð samkvæmt skráningu HMS. Þar af er bílskúr skráður 29,4 fm. Húsið er múrað og málað að utan og bílaplan er malarborið.
Nánari lýsing:
Efri hæð:
Steinsteyptar tröppur eru upp á góðan steyptan pall að útidyrum efri hæðarinnar. Af pallinum eru einnig steyptar tröppur niður á lóðina.
Gengið er í opið rými/hol á efri hæð. Þar inn af eru eldhús, stofa og borðstofa 3 svefnherbergi og baðherbergi. Þvottahús og búr eru inn af eldhúsi Gengt er úr þvottahúsi niður á neðri hæðina og einnig út á baklóðina.
Forstofa/hol parket á gólfi og fatahengi.
Eldhús flísar á gólfi. Falleg eldri innrétting. Helluborð og bakaraofn í vinnuhæð og góður borðkrókur.
Stofa og borðstofa eru samliggjandi. Parket á gólfum. Stofan er mjög björt með stórum gluggum og útsýni til suðvesturs.
Baðherbergi flísar í hólf og gólf, baðkar með sturtuaðstöðu.
Svefnherbergi parket á gólfum og skápar í 2 herbergjum.
Þvottahús er rúmgott með málað gólf. Þaðan er innangengt á neðri hæðina um steyptar tröppur.
Jarðhæð:
Skiptist í bílskúr, geymslu og óinnréttað rými.
Bílskúr Málað gólf og rafdrifinn innaksturshurð. Þar innaf er geymsla.
Geymsla 17,6 fm steypt og málað gólf. Þaðan er gengið í rúmgott, óinnréttað rými sem er utan skráðra fermetra.
Lóðin er hallandi og skjólsæl og í góðri rækt með trjám og blómagróðri. Efri hlutinn er með fallegum náttúrulegum gróðri.
Staðsetning á vinsælum stað miðsvæðis í Borgarnesi stutt í alla þjónustu svo sem verslun og skóla. Þá er sundlaug og íþróttahús neðar í götunni .
Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.
Kostnaður kaupanda:
Stimpilgjald skv. 5. gr. laga nr. 138/2013 um stimpilgjald, 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% við fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald kr. 3.800,- á hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá.
Engin umsýsluþóknun.
Eigindi eignar
| Tegund | Einbýli |
| Verð | 82.000.000 ISK |
| Áhvílandi | 0 ISK |
| Fasteignamat | 65.650.000 ISK |
| Brunabótamat | 82.200.000 ISK |
| Stærð | 164 fermetrar |
| Herbergi | 4 |
| Svefnherbergi | 3 |
| Baðherbergi | 2 |
| Byggingarár | 1965 |
| Lyfta | Nei |
| Bílskúr | Nei |
| Garður | Já |
| Skráð | 24.07.2026 |
























































































































