Hrafnaklettur 6

310 - Borgarnes

Lýsing eignar

Nes fasteignasala ehf kynnir eignina:

Hrafnaklettur 6, 310 Borgarnes, íb 403.

Um er að ræða 4ja herbergja íbúð á 4. hæð í steinsteyptu fjölbýlishúsi sem byggt var árið 1981.  Íbúðin er 96 fm að stærð skv. skráningu HMS. 

Nánari lýsing:
Sameign, flísar á anddyri og stigagangur er teppalagður.
Forstofa / hol er með flísum á gólfi og fataskáp.
Eldhús er með flísum á gólfi, góðri innréttingu og borðkrók.  
Stofa er björt og rúmgóð, með flísum á gólfi, þaðan er gengið út á suðvestur svalir.
Svefnherbergin eru þrjú, öll með parket á gólfum, stór fataskápur í hjónaherbergi.   
Baðherbergi flísar á gólfi, ásamt innréttingu og baðkari með sturtuaðstöðu. Tengi fyrir þvottavél.

Íbúðinni fylgir sérgeymsla á sameignargangi sem er utan skráðra fermetra, ásamt sameiginlegu þvottahúsi og hjólageymslu.  
Eignin er mikið endurnýjuð og í góðu ásigkomulagi þ.m.t. nýjar innihurðir.
Sameign hússins hefur verið mikið endurnýjuð á síðustu árum. Húsið var málað og múrviðgert að utan. Skipt var um teppi á stigagangi í desember 2011. Skipt um glugga og gler og svalahurð 2019.
Neysluvatnslagnir fyrir heitt og kalt vatn. 

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.

Nes fasteignasala tekur ekki umsýslugjald af kaupendum.
Kostnaður kaupanda:
Stimpilgjald skv. 5. gr. laga nr. 138/2013 um stimpilgjald, 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% við fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald kr. 3.800,- á hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá.
Engin umsýsluþóknun.

Eigindi eignar

Tegund Fjölbýli
Verð 48.000.000 ISK
Áhvílandi 0 ISK
Fasteignamat 42.050.000 ISK
Brunabótamat 49.350.000 ISK
Stærð 96 fermetrar
Herbergi 4
Svefnherbergi 3
Baðherbergi 0
Byggingarár 1979
Lyfta Nei
Bílskúr Nei
Garður Nei
Greiðslubyrði* ------ ISK
Útborgun** ------ ISK
Skráð 31.08.2026