Suðurhraun 4

320 - Reykholt (Borgarfirði)

Lýsing eignar

Nes fasteignasala kynnir eignina:

Suðurhraun 4 Húsafellsskógi 320 Reykholt                                                                   
Um er að ræða glæsilegt nýbyggt og einbýlishús, byggt úr timbureiningum á steyptri plötu og stál á þaki á fallegum stað í hrauninu í Húsafelli. Húsið er allt mjög vandað hvað efni og frágang varðar og stendur á 1,680 fm eignarlóð.

Nánari lýsing:                                                                                       
Húsið er vel staðsett í nýju hverfi að Húsafelli. Gengið er inn í anddyri í millibyggingu, þar á hægri hönd er gengið í opið alrými með eldhúsi, stofu og borðstofu. Þá er svefnálma með baðherbergi, geymslu, þvottahúsi, sjónvarpsholi og 2 svefnherbergjum ásamt hjónasvítu með baðherbergi, gengt er úr öllum herbergjum út á veröndina. Innbyggð lýsing er í öllu húsinu. Húsið er tengt við hitaveitu og er kynt með hitalögn í  gólfi. Umhverfis húsið er verönd með aðstöðu fyrir grill og heitan pott.

Forstofa:  Flísar á gólfi og fataskápar.
Stofa: Vandað parket á gólfum, upptekin loft og bjart rými, hljóðdúkur í lofti og gólfsíðir gluggar með rennihurð út á verönd. 
Eldhús. Hvít mjög falleg innrétting, gott skápapláss, bakarofn og örbylgjuofn í vinnu hæð. Eyja með vaski, uppþvottavél og vínkæli. Öll tæki frá Siemens.
Baðherbergi: Eru 2. Flísalögð í hólf og gólf með fallegum flísum.  Vegghengt salerni og walk-in sturta í báðum. 
Herbergi: Parket á gólfum og fataskápar gengi.
Verönd:  Klædd með lerki, vandaður frágangur.
 
Húsafell er rómaður staður með ýmislega þjónustu svo sem sundlaug golfvöll og hótel og veitingahús. Fallegar gönguleiðir og vinsæll staður fyrir útivist.

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson Lögg. fasteignasali, í síma 8650350 og 497-0040, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.

Nes fasteignasala tekur ekki umsýslugjald af kaupendum.
Kostnaður kaupanda:
Stimpilgjald skv. 5. gr. laga nr. 138/2013 um stimpilgjald, 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% við fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald kr. 3.800,- á hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá.
Engin umsýsluþóknun.

Eigindi eignar

Tegund Einbýli
Verð 115.000.000 ISK
Áhvílandi 0 ISK
Fasteignamat 47.650.000 ISK
Brunabótamat 0 ISK
Stærð 139 fermetrar
Herbergi 4
Svefnherbergi 3
Baðherbergi 2
Byggingarár 2026
Lyfta Nei
Bílskúr Nei
Garður
Greiðslubyrði* ------ ISK
Útborgun** ------ ISK
Skráð 07.09.2026