Lýsing eignar
Nes fasteignasala kynnir í einkasölu eignina:
Skúlagata 5, 310 Borgarnes.
Um er að ræða rúmgóða 3ja herbergja endaíbúð með sérinngangi af svölum á efri hæð í góðu tveggja hæða fjölbýlishúsi sem byggt er úr forsteyptum einingum árið 2008. Íbúðin er merkt 010201 og er 90,0 fm að stærð skv. skráningu HMS.
Nánari lýsing:
Íbúðin skiptist í forstofu, baðherbergi, 2 svefnherbergi, geymslu og alrými sem samanstendur af eldhúsi borðstofu og stofu. Sameigninleg hjóla og vagnageymsla er stakstæð við húsið. Gólfhiti er í allri íbúðinni.
Forstofa: Flísar á gólfi og góður fataskápur.
Baðherbergi: Er mjög rúmgott, flísalagt í hólf og gólf. Vegghengt salerni, hvít innrétting og sturtuklefi. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Herbergi: Flísar á gólfum og fataskápar í báðum.
Geymsla: Rúmgóð, innan íbúðar. Flísar á gólfi, nú nýtt sem auka herbergi.
Stofa: Björt og rúmgóð, flísar á gólfi. Gengið úr stofu út á SV svalir með góðu útsýni.
Eldhús: Góð hvít innrétting. Helluborð og bakarofn. Uppþvottavél og ísskápur í innréttingu.
Hér er mjög falleg íbúð á góðum stað þar sem öll þjónusta s.s. verslun, skóli og íþróttahús eru í göngufæri.
Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.
Nes fasteignasala tekur ekki umsýslugjald af kaupendum.
Kostnaður kaupanda:
Stimpilgjald skv. 5. gr. laga nr. 138/2013 um stimpilgjald, 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% við fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald kr. 3.800,- á hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá.
Engin umsýsluþóknun.
Eigindi eignar
| Tegund | Fjölbýli |
| Verð | 57.000.000 ISK |
| Áhvílandi | 0 ISK |
| Fasteignamat | 47.700.000 ISK |
| Brunabótamat | 56.050.000 ISK |
| Stærð | 90 fermetrar |
| Herbergi | 3 |
| Svefnherbergi | 2 |
| Baðherbergi | 1 |
| Byggingarár | 2008 |
| Lyfta | Nei |
| Bílskúr | Nei |
| Garður | Nei |
| Skráð | 16.09.2026 |






























































