Sjónarhóll

500 - Staður

Lýsing eignar

Nes fasteignasala ehf kynnir í einkasölu eignina:
                                                                                                                                                     
Einbýlishúsið Sjónarhóll, Borðeyri, 500 Staður.

Um er að ræða steinsteypt einbýlishús á 2 hæðum, byggt 1979.  Húsið er 185,5 fm að stærð og stendur á 792,0 fm leigulóð skv. skráningu HMS. Húsið er vel staðsett með góðu útsýni yfir Borðeyri og Hrútafjörð. Bílskúr á neðri hæð og þar er einnig útbúin íbúð með sérinngangi. Húsið selst með öllu innbúi fyrir utan persónulegra muna.

Nánari lýsing:
Efri hæð:

Gengið er í forstofu.  Hæðin skiptist í forstofu, stofu og eldhús og búr, 3 svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús.
Forstofa flísar á gólfi og fatahengi.
Svefnherbergi  eru 3.  Parket á gólfum og  fataskápur í 2 herbergjum.
Baðherbergi flísar í hólf og gólf, salerni. Lítil innrétting baðkar og sturta.
Eldhús með öllum helsta búnaði, innbyggðum kæliskáp og uppþvottavél. Búr er við hliðina og inn af þvottahúsi.
Borðstofa er inn af eldhúsi samliggjandi við stofuna. Parket á gólfum
Stofa parket á gólfum gott útsýni.
 
Neðri hæð:
Skiptist í forstofu, stofu og eldhús, baðherbergi og svefnherbergi.
Forstofa flísar og fatahengi.
Eldhús og stofa plastparket á gólfi, ljós innrétting helluborð og ísskápur í eldhúsi.
Svefnherbergi plastparket á gólfi, opið rými án glugga.
 
Bílskúr: Rafdrifin hurð, steypt gólf og geymslur þar innaf.
 
Húsið er upprunalegt hvað veggi, þak og glugga varðar og þarfnast viðhalds/endurnýjunar á ytra byrði.
Pallur var gerður sunnan við húsið og fyrir horn að aðalinngangi og gert ráð fyrir heitum potti með affalli hitaveitunnar.
Hitaveita var lögð fyrir 6 árum, allt í álpex og er eitt kerfi fyrir báðar hæðir. Rafmagnstaflan fyrir allt húsið er staðsett á neðri hæð.

Hér er eign með mikla möguleika á einstökum stað með stórbrotnu útsýni.

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.

Nes fasteignasala tekur ekki umsýslugjald af kaupendum.
Kostnaður kaupanda:
Stimpilgjald skv. 5. gr. laga nr. 138/2013 um stimpilgjald, 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% við fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald kr. 3.800,- á hvert skjal.
Skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati þegar það er lagt á.
Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá.
Engin umsýsluþóknun.

Eigindi eignar

Tegund Einbýli
Verð 31.950.000 ISK
Áhvílandi 0 ISK
Fasteignamat 27.100.000 ISK
Brunabótamat 90.300.000 ISK
Stærð 185.5 fermetrar
Herbergi 6
Svefnherbergi 0
Baðherbergi 0
Byggingarár 1979
Lyfta Nei
Bílskúr Nei
Garður Nei
Greiðslubyrði* ------ ISK
Útborgun** ------ ISK
Skráð 22.09.2026