Hrafnaklettur 4

310 - Borgarnes

Lýsing eignar

Nes fasteignasala ehf kynnir eignina:

Hrafnaklettur 4, íb. 202, 310 Borgarnes.

Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning!

Um er að ræða 2ja herbergja íbúð á 2 hæð í þriggja hæða fjölbýlishúsi, byggt 1989. Íbúðin er 66.1 fm að stærð að meðtalinni sérgeymslu á geymslugangi í kjallara, skv. skráningu HMS. Rúmgóðar 7,8 fm SV svalir.
Sérmerkt bílastæði næst húsinu fylgir íbúðinni. Sameiginlegt þvottahús og vagna- og hjólageymsla er í kjallara.

Íbúðin skiptist í forstofu/hol, eldhús með borðkrók, stofu/borðstofu, svefnherbergi og baðherbergi. Nýlegt plastparket er á öllum gólfum íbúðarinnar fyrir utan baðherbergi, þar eru flísar.

Nánari lýsing:
Forstofa: Opið rými með innbyggðum hvítum fataskáp.
Eldhús: Góð hvít innrétting með rúmu skápaplássi, eldhúskrókur.
Stofa: Björt og rúmgóð með fallegu útsýni. Gengið er út á svalir.
Svefnherbergi: Innbyggður fataskápur.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, hvít innrétting og walk-in sturta. Tengi fyrir þvottavél.
Geymsla: Rúmgóð með glugga, málað gólf. 
Sameign/anddyri: Flísar á gólfum, teppalagur stigagangu, þvottahús og vagna/hjólageymsla

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.

Eigindi eignar

Tegund Fjölbýli
Verð 35.000.000 ISK
Áhvílandi 0 ISK
Fasteignamat 33.900.000 ISK
Brunabótamat 37.500.000 ISK
Stærð 66.1 fermetrar
Herbergi 2
Svefnherbergi 1
Baðherbergi 1
Byggingarár 1989
Lyfta Nei
Bílskúr Nei
Garður Nei
Greiðslubyrði* ------ ISK
Útborgun** ------ ISK
Skráð 10.11.2026