Borgarbraut 65

310 - Borgarnes

Lýsing eignar

Nes fasteignasala ehf kynnir í einkasölu eignina:

Borgarbraut 65a, 310 Borgarnes, íbúð  03-01. Um er að ræða 2 herbergja þjónustuíbúð á 3 hæð í lyftuhúsi fyrir 60 ára og eldri, 71.0 fm að stærð ásamt er 27.9 fm bílskúr og er eignin því samtals 98.6 fm að stærð skv. skráningu HMS.
Íbúðin er vel skipulögð. S-V svalir. Öflugt húsfélag og hús og sameign er vel viðhaldið.

Sýnum samdægurs, bókið skoðun í síma 497-0040 eða 865-0350, netfang: thorarinn@fastnes.is.

Nánari lýsing:
Eignin skiptist í forstofu/hol, geymslu, baðherbergi, svefnherbergi, eldhús, stofu, borðstofu og sér bílskúr á 1 hæð.

Íbúðin merkt 010301; Gengið er í forstofu með fataskápum. Þar er rúmgóð geymsla á hægri hönd. Baðherbergi með vegghengt salerni, sturtuklefa, skápum og tengi fyrir þvottavél. Svefnherbergi er rúmgott með góðum skápum. Alrými samanstendur af eldhúsi, stofu og borðstofu.  Eldhús er með dökkri viðarinnréttingu, eldavél og bakarofni. Stofan er björt og þaðan er gengið út á svalir. 

Gólf eru öll dúklögð. Íbúðin er í upprunalegu ástandi en vel umgengin.

Bílskúr merktur 010105: Málað gólf, upphitaður vatn og rafmagn.  Góð rafdrifin innaksturhurð.

Innangengt er úr sameign í þjónusturými dvalarheimilisins. Íbúðin er laus til afhendingar við kaupsamning.

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.

Eigindi eignar

Tegund Fjölbýli
Verð 62.000.000 ISK
Áhvílandi 0 ISK
Fasteignamat 46.250.000 ISK
Brunabótamat 51.150.000 ISK
Stærð 98.59999961853 fermetrar
Herbergi 2
Svefnherbergi 1
Baðherbergi 1
Byggingarár 1993
Lyfta Já
Bílskúr Já
Garður Nei
Greiðslubyrði* ------ ISK
Útborgun** ------ ISK
Skráð 11.11.2026