Lýsing eignar
Nes fasteignasala ehf kynnir eignina:
Höfðagata 1, 510 Hólmavík. Um er að ræða steinsteypt einbýlishús á þremur hæðum sem breytt hefur verið í gistiheimili. Húsið sem er 279,3 fm að stærð var byggt árið 1913 og skiptist í gistiheimili og 2 íbúðir sem leigðar eru í skammtímaleigu.
Gistiheimilið
1. hæð. Komið er í forstofu, gólfborð. Borðstofa eða matsalur með dúkflísar á gólfi og panelklæðningu á veggjum. Eldhús er þar innaf. Á hæðinni eru 2 salerni með sturtu. Gólfborð eru í öllum rýmum og gangi.
2 hæð. Þar eru 5 svefnherbergi og snyrting. Gengið er um svaladyr út á stórar steyptar svalir.
Eftirfarandi er endurnýjað: Neysluvatnslagnir, skipt um klæðningu í matsal og einangrun bætt, skipt um glugga að hluta og rafmagn endurnýjað að hluta.
Rekstrarleyfi til gistingar og vínveitingaleyfi í gistiheimili.
Íbúð á 1. hæð.
Sérinngangur. Gengið af götu í eldhús og seturými.
Eldhús Helluborð og háfur, bakarofn og ísskápur. Gólfborð á öllum gólfum. Málaður panell á veggjum.
1 svefnherbergi
Baðherbergi vegghengt salerni, sturtuklefi lítil innrétting
Íbúð í kjallara.
Sérinngangur, flísar á gólfum.
1 svefnherbergi, baðherbergi
Baðherbergi vegghengt salerni og baðkar. Lítil innrétting
Eldhús hvít innrétting helluborð, bakarofn og ísskápur. Borðkrókur og seturými.
Báðar íbúðirnar eru nýlega innréttaðar
Hluti kjallara er óinnréttað rými og nýtist í dag sem geymsla og lager fyrir gistiheimilið.
Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.
Eigindi eignar
Tegund | Atvinnuhús |
Verð | 0 ISK |
Áhvílandi | 0 ISK |
Fasteignamat | 14.895.000 ISK |
Brunabótamat | 75.000.000 ISK |
Stærð | 279.3 fermetrar |
Herbergi | 8 |
Svefnherbergi | 0 |
Baðherbergi | 5 |
Byggingarár | 1913 |
Lyfta | Nei |
Bílskúr | Nei |
Garður | Nei |
Skráð | 05.10.2023 |