Stöðulsholt 40

310 - Borgarnes

Lýsing eignar

Nes fasteignasala kynnir eignina:
Stöðulsholt 40 sem er glæsilegt og vel skipulagt 181,5 fm parhús með bifreiðageymslu á einni hæð.
Húsið, sem er byggt úr forsteyptum einingum selst á byggingastigi 4, fullbúið með grófjafnaðri lóð.

Áætlaður afhendingartími miðað við byggingarstig 4 er eftir samkomulagi.

Nánari lýsing: 
Húsið, er vel skipulagt og skiptist þannig að íbúðin er 147,0 fm og bílskúr ásamt geymslu 35,5 fm.
Gengið er í anddyri og þaðan er innangengt í bifreiðageymslu. Stofa og eldhús mynda bjart og rúmgott alrými.  Stofan er með stórum gluggum sem snúa í austur og suður, og þar er gengt út á lóð. Í hinum hluta hússins eru fjögur svefnherbergi, sjónvarpshol, baðherbergi og þvottahús. Að auki er í hjónaherbergi sér bað og snyrting. 

Eignin skilast fullbúin að innan með grófjafnaðri lóð. Vinylparket verður á öllum gólfum nema votrýmum, flísar í votrýmum, vandaðar innréttingar í baðherbergi, þvottahúsi og eldhúsi frá Voke-III. Sjá nánar um skil í skilalýsingu seljanda.

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.
Nes fasteignasala tekur ekki umsýslugjald af kaupendum.
Kostnaður kaupanda:
Stimpilgjald skv. 5. gr. laga nr. 138/2013 um stimpilgjald, 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% við fyrstu kaup m.v. 50% eignarhlut eða meira og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald kr. 2.700,- á hvert skjal.
Skipulagsgjald 0,3% af brunabótamati.
Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá.
Engin umsýsluþóknun.

Eigindi eignar

Tegund Par/Raðhús
Verð 93.000.000 ISK
Áhvílandi 0 ISK
Fasteignamat 8.130.000 ISK
Brunabótamat 0 ISK
Stærð 181.5 fermetrar
Herbergi 5
Svefnherbergi 4
Baðherbergi 2
Byggingarár 2023
Lyfta Nei
Bílskúr
Garður Nei
Greiðslubyrði* ------ ISK
Útborgun** ------ ISK
Skráð 17.08.2024