Tannalækjarhólar Austur 1

311 - Borgarnes (dreifbýli)

Lýsing eignar

Nes fasteignasala kynnir í einkasölu Tannalækjarhóla austur 1.

Um er að ræða 58,8 fm sumarbústaður ásamt 9,8 fm gestahúsi og geymslu á landi Jarðlangsstaða í Borgarbyggð. Bústaðurinn stendur á 7.818 fm eignarlóð sem vel hirt og mikið gróin með grasflötum, trjám og birki. Bústaðurinn var byggður árið 1986 en geymsla/gestahús árið 1977. Rafmagnskynding er í húsinu og 200 lítra heitavatnskútur.  Svefnloft er yfir hluta hússin og sambyggt húsinu er baðhús.  

Nánari lýsing:                                                                                                                                                                      
Húsið er á sérafleggjara með einu öðru húsi og er læst hlið að lóðunum. Gengð er um trjágöng frá bílastæði að húsinu. Við innganginn er upphituð geymsla/þvottaherbergi með glugga. Þar er þvottavél og örbylgjuofn. Komið er inn í forstofu og innaf forstofunni er snyrting með glugga. Tvö svefnherbergi, annað með kojum og parket í báðum herbergjum. Eldhús með dökkri innréttingu og öllum tækjum,  m.a. uppþvottavél, ísskápur með frysti, eldavél með helluborði og ofni og kaffivél. Stofan er hlýleg með parket á gólfi og veglegum arni. Svefnloft er með glugga.  Baðhúsið er með sturtu og infrarauðum klefa. Gestahúsið er stakstætt og er með tvöföldum sófa og tvíbreiðu rúmi.
Stór sólpallur er á þrjá vegu með bústaðnum  og útisturta er við baðhúsið.
 
Innbú og tæki fylgja með í sölu utan persónulegra muna.
 
Sumarhúsabyggðin að Jarðlangsstöðum er skammt frá Borgarnesi og þar er sundlaug og margvísleg önnur þjónusta og afþreying.

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson Lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 og 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.

Eigindi eignar

Tegund Sumarhús
Verð 33.000.000 ISK
Áhvílandi 0 ISK
Fasteignamat 26.800.000 ISK
Brunabótamat 27.315.000 ISK
Stærð 68.600000190735 fermetrar
Herbergi 3
Svefnherbergi 2
Baðherbergi 1
Byggingarár 1986
Lyfta Nei
Bílskúr Nei
Garður Nei
Greiðslubyrði* ------ ISK
Útborgun** ------ ISK
Skráð 27.08.2024