Þrætuás – SELD 3

311 - Borgarnes (dreifbýli)

Lýsing eignar

Eignin er seld með fyrirvara.

Nes fasteignasala ehf kynnir eignina:

Þrætuás 3, 311 Borgarbyggð.
Um er að ræða mjög rúmgóðan og vel skipulagðan sumarbústað á eignarlóð úr landi Galtarholts. Húsið er 92,3 fm að stærð, byggt 2009 og er á steyptum grunni, kynt með rafmagni og hita í gólfi.  Stór verönd snýr til suðurs og vestur. Vönduð bygging, stallað járn á þaki og harðviður í gluggum og útihurðum. Húsið má auðveldlega nota sem heilsárshús.

Nánari lýsing: 
Gengið er í rúmgóða forstofu.  Gott  þvottahús og geymsla þar á hægri hönd,  Þrjú rúmgóð herbergi og baðherbergi eru á svefnherbergisgangi.  Útgengt út á verönd af herbergisgangi. Eldhús og stofa mynda rúmgott alrými. Stofan er björt í opnu rými.
 
Forstofa með fataskáp, flísar á gólfi.
Þvottahús og geymsla með innréttingum inn af forstofu, flísar á gólfi.
Svefnherbergi öll með skápum, parket á gólfi
Baðherbergi flísar á gólfi, vegghengt salerni, innrétting og sturta.
Eldhús með góðum innréttingum og miklu skápaplássi, öllum tækjum og góðum borðkrók.     
Stofa parket á gólfum með innréttingu á sjónvarpsvegg.  Útgengt úr stofu út á verönd.         
Verönd  með skjólvegg er 71,6 fm að stærð.
 
Bústaðurinn er á eignarlandi í um 15 mín. akstri norður af Borgarnesi.  Bústaðnum  fylgir 1/13 hlutur í 57.020 fm í sameignarlandi (7,69%). Sérafnotaréttur á landi umhverfis húsið samkvæmt hnitsettum uppdrætti  er 1.277 fm að stærð.  Landið er kjarri vaxið.  Húsið stendur upp á hæð og er fallegt útsýni frá veröndinni.

Bústaðurinn getur verið laus til afhendingar við kaupsamning  og allt innbú getur fylgt ásamt áhöldum utan persónulegra muna.

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson Lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.

Eigindi eignar

Tegund Sumarhús
Verð 45.000.000 ISK
Áhvílandi 0 ISK
Fasteignamat 38.400.000 ISK
Brunabótamat 48.650.000 ISK
Stærð 92.3 fermetrar
Herbergi 4
Svefnherbergi 3
Baðherbergi 1
Byggingarár 2009
Lyfta Nei
Bílskúr Nei
Garður Nei
Greiðslubyrði* ------ ISK
Útborgun** ------ ISK
Skráð 14.08.2024