Kveldúlfsgata 24

310 - Borgarnes

Lýsing eignar

Nes fasteignasala ehf kynnir eignina:
Kveldúlfsgata 24, 310 Borgarnes.
Um er að ræða 2ja herbergja íbúð á jarðhæð merkt 102 í fjölbýlishúsinu að Kveldúlfsgötu 24.
Íbúðin er 63.6 fm að stærð skv. skráningu HMS. Að auki er sér geymsla í kjallara sem ekki er skráð í fasteignamati.

Íbúðin skiptist í forstofu, baðherbergi, stofu, eldhús og svefnherbergi. Parket er á öllum gólfum fyrir utan flísar í baðherbergi.

Nánari lýsing:
Forstofa: Rúmgóður skápur.
Baðherbergi: Flísalagt með salerni, sturtu og lítilli innréttingu. 
Stofa: Björt og rúmgóð, gengt er út á lóð.
Eldhús: Góð og rúmgóð innrétting og borðkrókur.
Svefnherbergi: Rúmgott með góðu skápaplássi.

Geymsla er í sameign í kjallara, þar er einnig sameiginleg hjóla og vagnageymsla. Þvottahús er í sameign í kjallara. Þar er þvottavél til sameiginlegra nota.

Íbúðin hefur verið mikið endurnýjuð á síðustu 10 árum, allir ofnar endurnýjaðir, skipt um allt gólfefni nema á baðherbergi, fataskápar endurnýjaðir í forstofu og svefnherbergi, skipt um innihurðir og innréttingar í eldhúsi og baðherbergi.

Búið er að skipta um neysluvatnslagnir og járn á þaki, nýtt teppi er á stigagangi í sameign og stigagangurinn er nýmálaður. Fyrirhugað er að fara í framkvæmdir á ytra byrði hússins.

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is
Nes fasteignasala ehf. Borgarbraut 57, 310 Borgarnes.

Eigindi eignar

Tegund Fjölbýli
Verð 31.000.000 ISK
Áhvílandi 0 ISK
Fasteignamat 27.150.000 ISK
Brunabótamat 32.250.000 ISK
Stærð 63.6 fermetrar
Herbergi 2
Svefnherbergi 1
Baðherbergi 1
Byggingarár 1977
Lyfta Nei
Bílskúr Nei
Garður Nei
Greiðslubyrði* ------ ISK
Útborgun** ------ ISK
Skráð 20.09.2024