Þórólfsgata 12

310 - Borgarnes

Lýsing eignar

Þórólfsgata 12a 310 Borgarnes.
Um er að ræða 3ja herbergja íbúð í kjallara, merkt 001  í þríbýlishúsi að Þórólfsgötu 12a með sérinngangi.  Íbúðin er 90.1 fm. skv. nýrri eignaskiptayfirlýsingu. Steypt bílastæði. Mikið endurnýjað, bæði hús og íbúð. Húsfélag er um húsið.

Nánari lýsing:
Gengið er niður steyptar tröppur inn í flísalagða forstofu.  Þar á forstofugangi er stofa og eldhús. Inn af forstofugangi er gengið inn í aðrar vistarverur sem eru 2 herbergi, baðherbergi, eldhús og þvottahús. Ekki er full lofthæð í íbúðinni.

Eldhús með eldavél og hvítri innréttingu, flísar á gólfi. Helluborð og bakarofn í vegg
Baðherbergi  með vegghengt salerni, sturttu, lítilli innréttingu,handklæðaofn og vifta. Flísar í hólf og gólf.
Stofa  parket á gólfi.
Svefnherbergi parket á gólfum, skápar.
Þvottahús rúmgott, steypt málað gólf.
 
Húsið er mikið endurnýjað.  Öll klæðning á ytra byrði hússin er endurnýjuð og húsið einangrað að utan. Tröppur með húsinu steyptar og  drenlögn sett. Þá voru einnig settir nýjir gluggar og þakefni. Rafmagnstafla er ný og raflagnir endurnýjaðar. Útihurð er ný og öll loft eru nýklædd og íbúðin nýmáluð. Neysluvatnslagnir eru endurnýjaðar ásamt frárennsli út í brunn. 
 
Hér er vel staðsett eign í gamla miðbænum, stutt í alla þjónustu.

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson Lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.

Eigindi eignar

Tegund Hæðir
Verð 38.000.000 ISK
Áhvílandi 0 ISK
Fasteignamat 36.650.000 ISK
Brunabótamat 26.750.000 ISK
Stærð 90.1 fermetrar
Herbergi 3
Svefnherbergi 2
Baðherbergi 1
Byggingarár 1948
Lyfta Nei
Bílskúr Nei
Garður Nei
Greiðslubyrði* ------ ISK
Útborgun** ------ ISK
Skráð 15.10.2024