Lýsing eignar
Nes fasteignasala ehf kynnir eignina:
Bakkahvammur 6, 370 Búðardalur. Um er að ræða steinsteypt einbýlishús á 2 hæðum ásamt bílskúr byggt 1976. Húsið er 203,5 fm að stærð og stakstæður bílskúr er 30,0 fm. Samtals stærð er því 233,5 fm skv. skráningu HMS. Neðri hæð hússins er innréttuð sem íbúð með sérinngangi og er í útleigu. Steypt bílaplan, gangstétt og tröppur milli húss og bílskúrs á neðri hæð.
Nánari lýsing
Efri hæð:
Gengið er í forstofu. Þar innar er svefnherbergisálma á hægri hönd með 3 svefnherbergjum og baðherbergi. Á vinstri hönd er síðan eldhús og stofur. Gengið úr stofu út á rúmgóðan sólpall með skjólveggjum og heitum potti. Lokað er milli hæða með léttu efni og auðvelt að opna aftur ef þörf krefur.
Forstofa: Flísar á gólfi og fataskápur.
Svefnherbergi: Parket á gólfum og fataskápar
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, vegghengt salerni, innrétting baðkar og sturta. Tengi fyrir þvottavél.
Eldhús: Flísar á gólfi, rúmgóð eldri innrétting úr gegnheilum við. Uppþvottavél í innréttingu.
Borðstofa: Er inn af eldhúsi samliggjandi við stofuna. Parket á gólfum
Stofa: Parket á gólfum. Björt með góðu útsýni. Gengið um svalahurð út á sólpallinn.
Neðri hæð:
Á neðri hæð er 2ja herbergja íbúð sem skiptist í forstofu, eldhús, baðherbergi, 2 herbergi og geymslu undir steyptum tröppum milli hæða. Þar er stofunni breytt í stórt herbergi.
Forstofa: Flísar á gólfi, fataskápur.
Eldhús: Flísar og parket á gólfi. Lítil innrétting með helluborði.
Herbergi: Eru 2. Parket á gólfum, skápar í öðru.
Baðherbergi: Flísar á gólfi, lítil innrétting og baðkar. Tengi fyrir þvottavél.
Bílskúr: Er klæddur með Steni og einangraður. Sökkulrými er undir gólfi sem nýtist sem smurgryfja og geymsla. Nýleg rafdrifin innaksturhurð og göngudyr út á bílaplan
Þakefni hússins og rennur var allt endurnýjað 2012. Skipt var um svalahurð og glugga á efri hæð utan glugga á stigagangi 2012-2018. Þá voru hitavatnsleiðslur endurnýjaðar utanáliggjandi ca. 2010 og skipt um ofna að hluta. Sólpallur og heitur pottur byggt 2021.
Sér mælir er á rafmagni fyrir hvora hæð um sig.
Lóðin er vel hirt með grasflöt og trjám
Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 8650350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.
Eigindi eignar
Tegund | Einbýli |
Verð | 62.000.000 ISK |
Áhvílandi | 0 ISK |
Fasteignamat | 39.900.000 ISK |
Brunabótamat | 100.100.000 ISK |
Stærð | 233.5 fermetrar |
Herbergi | 7 |
Svefnherbergi | 5 |
Baðherbergi | 0 |
Byggingarár | 1976 |
Lyfta | Nei |
Bílskúr | Já |
Garður | Nei |
Skráð | 14.11.2024 |