Lýsing eignar
Nes Fasteignasala kynnir:
Ferðaþjónustuna að Snorrastöðum 311 Borgarbyggð sem er mjög áhugavert atvinnutækifæri í fallegu og vinsælu umhverfi við Löngufjörur og í nágrenni Eldborgar.
Um er að ræða þær fasteignir sem nýttar eru í ferðaþjónustu ásamt 35,5 ha eignarlandi sem stofnað verður úr landi jarðarinnar Snorrastaða í Borgarbyggð. Þær fasteignir sem um ræðir eru: Hvítahúsið, 5 gestahús og eldra hesthús með hlöðu ásamt vinsælu tjaldsvæði með allri þjónustu við ferðamenn. Hitaveita í eigu seljanda er á svæðinu.
Nánari lýsing:
Hvíta húsið er á tveimur hæðum, á efri hæð eru 6 herbergi; 2×5 manna, 3×4 manna,1×2 manna. Kojur eru í öllum herbergjum. Einnig er setustofa á efri hæðinni og 3 baðherbergi, 2 af þeim með sturtu.
Á neðri hæð er eldunaraðstaða og lítill salur fyrir 30-40 manns.
Stór salur er einnig í Hvíta húsinu, tekur 130-150 manns í sæti og í þeim sal er einnig ágæt eldunaraðstaða.
Húsið er gistihús og hluti þess nýtist einnig sem þjónustuhús fyrir tjaldsvæðið.
Gestahús fullbúið með 4 herbergjum fyrir 10 manns, verönd og heitur pottur.
Sumarhús eru 4, fullbúin með 2 svefnherherbergjum fyrir 5 manns hvert. Sólpallur og heitur pottur.
Hesthús/hlaða eru eldri byggingar. 8 stíur í hesthúsinu.
Nánari upplýsingar og myndir er að finna á heimasíðu Ferðaþjónustunnar: https://snorrastadir.is/
Einstök staðsetning Snorrastaða við Löngufjörur og Eldborg býður upp á mikla möguleika til þjónustu við ferðamenn enda eru Löngufjörur eitt eftirsóttasta svæði hestamanna til útreiða. Þá eru fagrar gönguleiðir í nágrenni Eldborgar. Snorrastaðir hafa notið mikilla og vaxandi vinsælda ferðamanna á undanförnum árum. enda eru hestaferðir á fjörunum og nágrenni ógleymanleg upplifun. Stórbrotið útsýni til allra átta í nágrenni Eldborgarinnar.
Hér er því um spennandi eign að ræða fyrir einkaaðila jafnt sem aðila í ferðaþjónustu eða félagasamtök sem hafa áhuga á að koma upp einstakri aðstöðu fyrir félagsmenn sína.
Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.
Eigindi eignar
Tegund | Atvinnuhús |
Verð | 160.000.000 ISK |
Áhvílandi | 0 ISK |
Fasteignamat | 73.640.000 ISK |
Brunabótamat | 270.800.000 ISK |
Stærð | 908.5 fermetrar |
Herbergi | 0 |
Svefnherbergi | 0 |
Baðherbergi | 0 |
Byggingarár | 0 |
Lyfta | Nei |
Bílskúr | Nei |
Garður | Nei |
Skráð | 28.11.2024 |