Stöðulsholt 38

310 - Borgarnes

Lýsing eignar

Nes fasteignasala kynnir eignina:
Stöðulsholt 38 sem er glæsilegt og vel skipulagt 181,5 fm parhús með bílskúr á einni hæð.
Húsið, sem er byggt úr forsteyptum einingum selst fullbúið með lokaúttekt á byggingarstigi 4.

Áætlaður afhendingartími er eftir samkomulagi, eignin getur verið fullkláruð og tilbúin til afhendingar á skömmum tíma. 

Nánari lýsing: 
Húsið, er vel skipulagt og skiptist þannig að íbúðin er 147,0 fm og bílskúr ásamt geymslu er 35,5 fm skv. skráningu HMS.

Komið er inn í rúmgóða forstofu, á vinstri hönd er innangengt í bílskúr. Inn af forstofu er lítill gangur, þar á hægri hönd er gengið í rúmt og bjart alrými sem samanstendur af stofu og eldhúsi. Eldhús er sérlega rúmgott, með góðu skápaplássi og eyju, útgengi á lóð er úr stofu. Innaf gangi er gengið inná svefnherbergisgang.  Þar eru 4 svefnherbergi, þvottahús, rúmgott baðherbergi og sjónvarpshol. Hjónaherbergi er rúmgott með stórum fataskáp og sér baðherbergi.

Forstofa: Flísar á gólfi, fataskápur frá Voke-III. 
Bílskúr: Sjálfvirk bílskúrshurð, epoxy á gólfi.
Alrými, eldhús, stofa og gangur: Vinylparket á gólfumi, vandaðar dökkar innréttingar í eldhúsi frá Voke-III með ljósri plastlagðri borðplötu. Heimilistæki frá Electrolux (innbygður ísskpápur, uppþvottavél og span helluborð.
Tengi fyrir sjónvarp í stofu og á gangi.
Þvottahús: Flísar á gólfi, ljós inrrétting frá Voke-III með vaski.
Svefnherbergi: Vinylparket á gólfum, ljósir fataskápar frá Voke-III.
Auka baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Upphengt salerni, walk in sturta og innrétting frá Voke-III.
Aðalbaðherbergi: Flísar á gólfi og hluta af vegg. Upphengt salerni, walk in sturta og handklæðaofn. Innrétting frá Voke-III með speglaskáp.
Bílskúr: Sjálfvirk bílskúrshurð, epoxy á gólfi.

Myndir eru innan úr sambærilegri eign að Stöðulsholti 40.

Eignin skilast fullbúin með lokaúttekt á byggingarstigi 4, með grófjafnaðri lóð.
Vinylparket verður á öllum gólfum nema votrýmum, þar eru flísar. Vandaðar innréttingar í baðherbergi, þvottahúsi og eldhúsi frá Voke-III. Innihurðar eru hvítlakkaðar frá Birgisson (eða sambærilegu). Sjá nánar um skil í skilalýsingu seljanda.

Nes fasteignasala tekur ekki umsýslugjald af kaupendum.

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.

Kostnaður kaupanda:
Stimpilgjald skv. 5. gr. laga nr. 138/2013 um stimpilgjald, 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% við fyrstu kaup m.v. 50% eignarhlut eða meira og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald kr. 2.700,- á hvert skjal.
Skipulagsgjald 0,3% af brunabótamati.
Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá.
Engin umsýsluþóknun.

Eigindi eignar

Tegund Par/Raðhús
Verð 93.000.000 ISK
Áhvílandi 0 ISK
Fasteignamat 64.850.000 ISK
Brunabótamat 0 ISK
Stærð 181.5 fermetrar
Herbergi 5
Svefnherbergi 4
Baðherbergi 2
Byggingarár 2023
Lyfta Nei
Bílskúr
Garður Nei
Greiðslubyrði* ------ ISK
Útborgun** ------ ISK
Skráð 29.11.2024