Lýsing eignar
Nes Fasteignasala kynnir eignina Vesturbraut 12, 370 Búðardal ásamt veitingarekstri.
Um er að ræða sölu á atvinnurekstri ásamt 135 fm atvinnuhúsnæði í góðu ástandi á einni hæð, byggt 1958. Þar er rekinn veitingastaðurinn Veiðistaðurinn og Ísbúðin í Búðardal.
Húsnæðið er smekklega innréttað. Fullbúið veitingaeldhús er í sérrými. Ísbúðin er með öllum tækjum. Rúmgóð og frágengin bílastæði.
Nánari lýsing
Gengið er inn af Vesturbraut. Sérinngangur er inn í veitingahúsið. Þar er vistlegur veitingasalur, hátt til lofts og leyfi fyrir 50 manns. 3 salerni eru inn af salnum, tvö fyrir konur og eitt karla. Eldhúsið er vel búið tækjum, m.a. gufuofn, nýyfirfarinn, 2 grill og djúpsteikingarpottur. Veitingastaðurinn hefur vínveitingaleyfi. Starfsmannaaðstaða er á millilofti yfir ísbúðinni.
Gengið er inn í Ísbúðina af Vesturbrautinni til hliðar við veitingastaðinn. Ísbúðin er fullbúin tækjum og samningur er við Kjörís um tæki og aðföng til rekstursins.
Gluggar og útihurð hefur verið endurnýjað í veitingahúsi.
Rekstur veitingastaðarins og ísbúðarinnar er á hendi félagsins Sæúlfur slf. og fylgir félagið með í kaupum.
Hér er um spennandi tækifæri að ræða fyrir þá sem vilja stunda sjálfstæðan atvinnurekstur á landsbyggðinni.
Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.
Nes fasteignasala ehf. Borgarbraut 57, 310 Borgarnesi.
Eigindi eignar
Tegund | Atvinnuhús |
Verð | 29.000.000 ISK |
Áhvílandi | 0 ISK |
Fasteignamat | 4.650.000 ISK |
Brunabótamat | 34.500.000 ISK |
Stærð | 135.1 fermetrar |
Herbergi | 0 |
Svefnherbergi | 0 |
Baðherbergi | 0 |
Byggingarár | 1958 |
Lyfta | Nei |
Bílskúr | Nei |
Garður | Nei |
Skráð | 09.03.2022 |