Vindás 2a

310 - Borgarnes

Lýsing eignar

Nes fasteignasala ehf kynnir eignina:

Vindás 2a, Borgarnesi.
Um er að ræða mikið endurnýjað hesthús í 4ja hesthúsa lengju. Eignarhlutinn er 52,5 fm að stærð skv. skráningu FMR.

Í húsinu eru fjórar tveggja hesta stíur. Hlaða með steyptu gólfi, nýlegri rennihurð og hnakkageymsla. Lítil kaffistofa og salerni.  
Eignarhlutinn var mikið endurnýjaður af fyrri eiganda. Allt endurnýjað að innan; einangrað og veggir og loft klæddir með járni, timbur í grind endurnýjað. Að utan var skipt um járn að hluta, þak er upprunalegt.

Sameiginlegt hestagerði er fyrir allt húsið í óskiptri sameign ásamt lóð. Steypt stétt fyrir framan hús. 

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.
Nes fasteignasala ehf. Borgarbraut 57, 310 Borgarnes.

Eigindi eignar

Tegund Hesthús
Verð 9.200.000 ISK
Áhvílandi 0 ISK
Fasteignamat 6.424.000 ISK
Brunabótamat 16.600.000 ISK
Stærð 52.5 fermetrar
Herbergi 1
Svefnherbergi 0
Baðherbergi 0
Byggingarár 1982
Lyfta Nei
Bílskúr Nei
Garður Nei
Greiðslubyrði* ------ ISK
Útborgun** ------ ISK
Skráð 09.11.2022