Lýsing eignar
Nes fasteignasala ehf kynnir eignina:
Borgarbraut 19, 310 Borgarnes.
Um er að ræða steinsteypt einbýlishús á tveimur hæðum byggt 1918 sem er 103.1 fm. að stærð skv. skráningu FMR. sem klætt er að utan með báruáli, bárujárn er á þaki.
Nánari lýsing:
Gengið er ínn í forstofu. Þar á hægri hönd er baðherbergi með sturtu. Baðherbergið er allt nýlega uppgert með flísum á gólfi og veggjum. Inn af forstofunni er rúmgott þvottahús. Á vinstri hönd er gengið inn í eldhús, innaf því er lítill gangur sem á er herbergi, nýlega uppgert salerni með tengjum fyrir þvottavél og þurrkara og stigi upp á aðra hæð. Á efri hæð er hol, svefnherbergi og stofa. Gengt er úr holinu út á baklóð. Dúkur er á gólfum í herbergjum nema í svefnherbergi niðri og hluta efri hæðar þar er parket. Kaldavatnslagnir hafa verið endurnýjaðar og einnig heitavatnslagnir að hluta. Rafmagnslagnir endurnýjaðar að hluta, íhlutir í rafmagstöflu endurnýjaðir að hluta. Klæðning á ytra byrði virðist í góðu ástandi og ástand hússins gott miðað við aldur þess. ofnar hafa verið endurnýjaðir að hluta.
Sérlega vel staðsett lítið einbýli í hjarta Borgarness.
Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.
Nes fasteignasala ehf. Borgarbraut 57, 310 Borgarnes.
Eigindi eignar
Tegund | Einbýli |
Verð | 39.900.000 ISK |
Áhvílandi | 0 ISK |
Fasteignamat | 25.000.000 ISK |
Brunabótamat | 40.600.000 ISK |
Stærð | 103.1 fermetrar |
Herbergi | 4 |
Svefnherbergi | 3 |
Baðherbergi | 2 |
Byggingarár | 1918 |
Lyfta | Nei |
Bílskúr | Nei |
Garður | Nei |
Skráð | 28.12.2022 |