Hótel Hafnarfjall

301 - Akranes (dreifbýli)

Lýsing eignar

Nes fasteignasala kynnir eignina:
Hótel Hafnarfjall, sem er 484,7 fm gistihús ásamt 40,0 fm íbúð.  Að auki eru 5 frístandandi gestahús 27,1 fm hvert, allt á á 95720,0 fm viðskipta og  þjónustulóð.  Hótelið og gestahúsin eru skráð sem Hafnarfjall 2 á fasteignanúmerinu F2221224. Eignin er staðsett skammt frá þjóðvegi 1 á frábærum stað í Hafnarskógi skammt frá suðurenda Borgarfjarðarbrúarinnar.   

Nýtt skipulag er í gildi sem heimilar bæði stækkun hótelsins ásamt byggingu starfsmannaíbúða og byggingu 6 gestahúsa í viðbót.

Hótelið hefur verið nokkuð endurnýjað að innan síðustu ár. Það stendur á 9,5 hektara eignarlandi.  Í hótelinu eru 22 herbergi auk studioíbúðar á efri hæð sem einnig má nýta til útleigu. 

Á neðri hæð er gestamóttaka og bar, veitingasalur sem rúmar 50 gesti í sæti, 2 salerni í anddyri, setustofa, og eldhús sem er vel búið tækjum, 9 herbergi eru á neðri hæð með sér inngangi og sér baðherbergi. 
Á efri hæð eru auk íbúðarinnar, 8 herbergi. Ein 3 manna svíta með baði og 1 herb. með baðhergi  auk þess eru 6 herbergi með sameiginlega snyrtiaðstöðu á hæðinni.  Snyrtiaðstaðan þar eru 2 salerni án sturtu og tvö baðherbergi með sturtum.  Starfsmannaaðstaða er á efri hæð. Kjallari er ekki innifalinn í heildarfermetratölu en hann er ekki með fullri lofthæð (2,05 m).  Hann er um 2,5 m. á breidd og ca. 30 m. langur. 
Byggingarár er 1995 og hefur eigninni verið vel við haldið. Frístandandi saunahús er við hótelið með búningsherbergi, hvíldarherbergi og heitum potti.  Hótelið er i mjög fallegu umhverfi þar sem ströndin er á aðra hönd en Hafnarfjallið og Tungukollur á hina. Frábærar gönguleiðir og stutt í alla þjónustu í Borgarnesi s.s. verslanir og sundlaug og ýmislega afþreyingu.  Nálægðin við hafið gefur möguleika á að stunda silungsveiði ásamt annarri útivist.
Gert er ráð fyrir tjaldsvæði milli hótelsins og strandarinnar.

Hér er gott tækifæri fyrir dugmikla aðila að taka  þátt í örum vexti ferðaþjónustunnar á næstu árum.

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.

Eigindi eignar

Tegund Atvinnuhús
Verð 220.000.000 ISK
Áhvílandi 0 ISK
Fasteignamat 83.810.000 ISK
Brunabótamat 260.350.000 ISK
Stærð 661.20000190735 fermetrar
Herbergi 23
Svefnherbergi 0
Baðherbergi 0
Byggingarár 1995
Lyfta Nei
Bílskúr Nei
Garður Nei
Greiðslubyrði* ------ ISK
Útborgun** ------ ISK
Skráð 26.01.2023