Lýsing eignar
Nes fasteignasala ehf kynnir eignina:
Kveldúlfsgata 26, 310 Borgarnes.
Um er að ræða 3ja herbergja íbúð á þriðju hæð í fjölbýlishúsi. Íbúðin er 74.8, fm að stærð skv. skráningu FMR. Svalir 6.7 fm mót suðri. Að auki er sér geymsla geymsla í kjallara sem ekki er skráð í fasteignamati.
Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning.
Nánari lýsing:
Flísalagt anddyri og teppalagður stigagangur í sameign.
Úr holi er gengið í tvö herbergi, eldhús, baðherbergi og stofu.
Hol með parketi á gólfi.
Svefnherbergi, dúkur á gólfum, gott skápapláss í hjónaherbergi.
Eldhús með eldri innréttingu og tækjum, dúkur á gólfi, góður borðkrókur.
Baðherbergi er með flísalagt gólf og veggi að hluta. Salerni, baðkar og hvít innrétting. Tengi fyrir þvottavél.
Stofa er björt og rúmgóð og þaðan er gengið út á suðursvalir. Parket á gólfi.
Geymsla er í sameign í kjallara, þar er einnig sameiginleg hjóla og vagnageymsla. Þvottahús er í sameign í kjallara. Þar er þvottavél til sameiginlegra nota.
Skipt hefur verið um þakefni og neysluvatnslagnir endurnýjaðar.
Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.
Eigindi eignar
Tegund | Fjölbýli |
Verð | 36.000.000 ISK |
Áhvílandi | 0 ISK |
Fasteignamat | 26.050.000 ISK |
Brunabótamat | 33.350.000 ISK |
Stærð | 74.8 fermetrar |
Herbergi | 3 |
Svefnherbergi | 2 |
Baðherbergi | 1 |
Byggingarár | 1975 |
Lyfta | Nei |
Bílskúr | Nei |
Garður | Nei |
Skráð | 13.02.2023 |