Lýsing eignar
Nes fasteignasala kynnir eignina:
Þorsteinsgata 15, 310 Borgarnesi. Vel staðsett tveggja hæða einbýlishús byggt 1957. Eignin er 202.9 fm að stærð skv. skráningu HMS. Þar af er 48.2 fm stakstæður bílskúr.
Neðri hæð
Forstofa er flísalögð, fatahengi. Inn af forstofu er flísalagður gangur. Þar er eldhús á vinstri hönd. Stofa og borstofa eru samliggjandi. Á hægri hönd er gestasnyrting, tvö herbergi og þvottahús. Gengt er úr þvottahúsi út á bílaplan.
Efri hæð
Gengið er úr holi upp teppalagðan stiga á efri hæð. Þar er gangur með 3 svefnherbergjum og baðherbergi. Við enda gangsins er lítið sjónvarpshol.
Nánari lýsing
Stofa og borðstofa eru samliggjandi, parket á gólfum.
Eldhús flísar á gólfi og veggjum að hluta. Góð innrétting með stæði fyrir uppþvottavél , borðkrókur.
Herbergi eru 5. Hjónaherbergi er á neðri hæð með góðu skápaplássi. 2 rúmgóð svefnherbergi eru á efri hæð eru með litlum fataherbergjum. Þriðja herbergið er minna og nýtt sem skrifstofa. Dúkur á gólfum.
Baðherbergi á efri hæð er dúklagt í hólf, lítil geymsla þar innaf.
Gestasnyrting á neðri hæð flísar í hólf og gólf
Þvottahús er rúmgott með flísar á gólfi. Sérinngangur, hengi fyrir útiföt og sturta í sama rými.
Bílskúr stendur sér á lóð inni og er heimreið og bílastæði steypt.
Ágæt lóð með grasflöt.
Mjög áhugaverð eign fyrir barnafólk. Frábær staðsetning, stutt í íþróttahús, skóla og alla þjónustu.
Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.
Eigindi eignar
Tegund | Einbýli |
Verð | 65.000.000 ISK |
Áhvílandi | 0 ISK |
Fasteignamat | 50.250.000 ISK |
Brunabótamat | 69.300.000 ISK |
Stærð | 202.90000076294 fermetrar |
Herbergi | 7 |
Svefnherbergi | 5 |
Baðherbergi | 2 |
Byggingarár | 1957 |
Lyfta | Nei |
Bílskúr | Já |
Garður | Nei |
Skráð | 08.03.2023 |