Lýsing eignar
Eignin er seld með fyrirvara.
Nes fasteignasala ehf kynnir í einkasölu eignina:
Kjartansgata 7, 310 Borgarnes. Um er að ræða vel staðsett talsvert endurnýjað 114,9 fm einbýlishús á einni hæð byggt 1960. Stórbrotið útsýni úr eigninni og af lóð.
Nánari lýsing
Gengið er inní anddyri með fataskáp og fatahengi, úr anddyri er gengið inn í hol.
Á svefnherbergisgangi eru 3 svefnherbergi og baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf, sturtuklefi og vegghent salerni.
Stofa er rúmgóð og björt.
Eldhús er með borðkrók og rúmgóðri innréttingu með góðu vinnu og skápaplássi, gengið er inn í búr og þvottahús úr eldhúsi.
Úr þvottahúsi er gengið út bakgarð.
Endurbætur á síðustu árum samkvæmt seljanda eru:
Neysluvatnslagnir, bæði heitt og kalt vatn.
Skólp- og frárennslislagnir endurnýjaðar út í götu.
Rafmagnstafla, tenglar og rofar.
Gólfefni á öllu nema í forstofu og búri.
Baðherbergi endurnýjað, bæði hvað varðar tæki og innréttingar. Þvottahús flotað og málað.
Eldhúsinnrétting endurnýjuð ásamt tækjum í eldhúsi.
Álsink á þaki virðist í góðu ásigkomulagi.
Nýbúið er að skipta um glugga í öllum svefnherbergjum, verið er að klára frágang að innan.
Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.
Nes fasteignasala ehf. Borgarbraut 57, 310 Borgarnesi.
Eigindi eignar
Tegund | Einbýli |
Verð | 47.000.000 ISK |
Áhvílandi | 0 ISK |
Fasteignamat | 38.000.000 ISK |
Brunabótamat | 47.750.000 ISK |
Stærð | 114.9 fermetrar |
Herbergi | 4 |
Svefnherbergi | 3 |
Baðherbergi | 1 |
Byggingarár | 1960 |
Lyfta | Nei |
Bílskúr | Nei |
Garður | Nei |
Skráð | 17.05.2023 |