Kveldúlfsgata 20

310 - Borgarnes

Lýsing eignar

Nes fasteignasala ehf kynnir eignina:
Kveldúlfsgata 20, 310 Borgarnes.
Um er að ræða rúmgóða 4 herbergja íbúð á 3 hæð  merkt 301 í 3ja hæða fjölbýlishúsi að Kveldúlfsgötu 20.  Íbúðin er 105,9 m2 að stærð skv. skráningu HMS. Stórar yfirbyggðar svalir 12,3 fm eru mót suðvestri. Að auki er mikið geymslurými í sameign í kjallara, skráð stærð er þó 5,7 fm.

Nánari lýsing:
Flísalagt anddyri og teppalagður stigagangur  í sameign.
Úr holi er gengið í þrjú svefnherbergi, baðherbergi ,eldhús og stofu. 
Þvottahús og búr/skrifstofurými eru innaf eldhúsi

Hol  parket á gólfi, fataskápur.
Eldhús með viðarinnréttingu, parket á gólfi.  Helluborð, bakarofn og uppþvottavél í innréttingu.
Búr, flísalagt herbergi með opnalegu fagi í glugga nú nýtt sem skrifstofuherbergi, þar innaf er lítið þvottahús.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Vegghengt salerni og baðkar.
Stofa og borðstofa er björt og rúmgóð. Parket á gólfi. Gengið er úr stofu út á yfirbyggðar og flísalagðar svalir.
Svefnherbergi, parket á gólfum, fataskápar í hjónaherbergi og forstofuherbergi.
Geymsla er í sameign í kjallara, þar er einnig sameiginleg hjóla og vagnageymsla.                          
 
Búið er að klæða hluta útveggja hússins en austurhlið hússins er múrviðgerð og máluð.
 
Vel staðsett íbúð á vinsælum stað með stórbrotnu útsýni yfir Borgarvog og vestur á Snæfellsnes

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is
Nes fasteignasala ehf. Borgarbraut 57, 310 Borgarnes.

Eigindi eignar

Tegund Fjölbýli
Verð 45.000.000 ISK
Áhvílandi 0 ISK
Fasteignamat 32.300.000 ISK
Brunabótamat 47.550.000 ISK
Stærð 105.9 fermetrar
Herbergi 4
Svefnherbergi 3
Baðherbergi 1
Byggingarár 1973
Lyfta Nei
Bílskúr Nei
Garður Nei
Greiðslubyrði* ------ ISK
Útborgun** ------ ISK
Skráð 25.05.2023