Lýsing eignar
Nes fasteignasala kynnir eignina:
Austurholt 8 310 Borgarnesi sem er endaíbúð í raðhúsi á 3 pöllum ásamt kjallara og sambyggðri bifreiðageymslu byggt 1983. Eignin er skráð samtals 221,3 fm skv. skráningu HMS en þar af er bifreiðageymsla 19.3 fm. Íbúðin er vel staðsett með fallegu útsýni.
Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning.
Nánari lýsing
Bílaplan er steypt. Þar meðfram er sólpallur með heitum potti. Gengið er í forstofu á stigapalli. Inn af forstofu á vinstri hönd er eldhús með parket á gólfi. Á efri hæð er stofa, herbergi og snyrting. Á neðri hæð eru 3 svefnherbergi baðherbergi og Þvottahús. Gengt er úr þvottahúsi út á lóð. Í kjallara. Þar eru 3 geymslur og baðherbergi með sturtu.
Anddyri er flísalagt með fatahengi.
Eldhús Rúmgóð innrétting gegnheil eik með góðum borðkrók. Eyja með helluborði og góðu skápaplássi. Bakarofn í vegg og stæð í innréttingu fyrir uppþvottavél.
Stofa og borðstofa björt og hátt til lofts. Parket á gólfi. Gengt úr stofu út á SA svalir.
4 svefnherbergi parket á herbergi á efri hæð og rúmgóðir fataskápar. Herbergi á neðsta palli eru nýmáluð, 2 eru parketlögð og dúkur á einu þeirra.
Baðherbergi flísar á gólfi í snyrtingu á efsta palli. Flísar á gólfi og baðkar í baðherbergi á neðsta palli. Baðherbergi í kjallara er með sturtu og flísalagt í hólf og gólf.
Þvottahús á neðsta palli með físum á gólfi og útgengi út í garð.
Bílskúr steypt gólf og geymsluloft yfir hluta.
Járn á þaki er endurnýjað. Einangrun í lofti á efri hæð er endurnýjuð og loft klætt með nýjum loftapanel. Þá er neysluvatn í eldhús endurnýjað. Að öðru leyti er íbúðin er að mestu upprunaleg s.s., gluggar, gler, lagnir og ofnar.
Hér er um rúmgóða eign að ræða á eftirsóttum stað í Borgarnesi
Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.
Eigindi eignar
Tegund | Par/Raðhús |
Verð | 70.900.000 ISK |
Áhvílandi | 0 ISK |
Fasteignamat | 59.400.000 ISK |
Brunabótamat | 95.600.000 ISK |
Stærð | 221.3 fermetrar |
Herbergi | 5 |
Svefnherbergi | 4 |
Baðherbergi | 2 |
Byggingarár | 1983 |
Lyfta | Nei |
Bílskúr | Nei |
Garður | Nei |
Skráð | 25.08.2023 |