Eyrarvegur 20

350 - Grundarfjörður

Lýsing eignar

Nes fasteignasala kynnir í einkasölu fasteignina:

Eyrarvegur 20, 350 Grundarfirði. Einbýlishús á tveimur hæðum, byggt 1955.  Húsið er 130,3 fm að stærð ásamt stakstæðum 38,5 fm bílskúr, byggður 2007. Samtals er fasteignin 168,1 fm að stærð skv. skráningu HMS. 
Við húsið eru sólpallar með skjólveggjum.  
Um er að ræða steinsteypt hús járnklætt  að utan. Gengið er í forstofu á 1. hæð.  Þar er herbergi, seturými og þvottahús.  Hringstigi er milli hæða.  Efri hæðin skiptist í stofu, eldhús, baðherbergi og 2 svefnherbergi. 

Nánari lýsing:
Forstofa og gangur neðri hæð, flísalagt með gólfhita. Fatahengi og skápur. 
Herbergi neðri hæð, plastparket. 
Seturými/hol neðri hæð flísar á gólfi og þvottahús þar innaf, 
Þvottahús neðri hæð, steingólf lakkað
Stigi milli hæða Hringstigi með tréþrepum.
Gangur efri hæð, steinflísar á gólfi.
Eldhús efri hæð, steinflísar á gólfi. Hvít lökkuð Ikea innrétting. Stór skápaveggur með plássi fyrir stóran ísskáp,  bakarofn á vegg, lokaður skápur fyrir örbylgjuofn og útdraganlegum hillur. Neðri skápar eru skúffur,  og opnar hillur. Uppþvottavél innbyggð í innréttingu. Góður borðkrókur.
Herbergi efri hæð parket og skápar í báðum. 
Baðherbergi m/ glugga. Flísalagt í hólf og gólf, skápur undir vaski og hillur.  Vegghengt salerni, baðkar og  handklæðaofn..
Stofa steinflísar á gólfi og svalahurð út á sólpall.
Sólpallur gengt úr stofu, timburpallur að hluta með skjólveggjum og steyptur pallur með vesturhlið  húsins. Útsýni yfir fjörðinn og kirkjufell. 
Geymsluloft er yfir hæðinni og er að hluta manngengt. 

Bílskúr  er með steypt gólf, rafmagn og hurðaopnara.
 
Mjög vel staðsett einbýlishús með góðu útsýni yfir Grundarfjörð og Kirkjufell.  

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson Lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.

Eigindi eignar

Tegund Einbýli
Verð 40.500.000 ISK
Áhvílandi 0 ISK
Fasteignamat 32.000.000 ISK
Brunabótamat 66.200.000 ISK
Stærð 168.09999923706 fermetrar
Herbergi 4
Svefnherbergi 3
Baðherbergi 1
Byggingarár 1955
Lyfta Nei
Bílskúr
Garður Nei
Greiðslubyrði* ------ ISK
Útborgun** ------ ISK
Skráð 12.09.2023