Lýsing eignar
Nes fasteignasala ehf kynnir í einkasölu eignina:
Brákarbraut 8, 310 Borgarnes íb. 203. Um er að ræða 5 herbergja íbúð á tveimur hæðum á vinsælum stað í neðri bænum. Eignin er samtals 162.7 fm að stærð skv. skráningu FMR. Á 2. hæð sem er 91,9 fm að stærð er anddyri, alrými sem samanstendur af eldhúsi og stofu, snyrting og svefnherbergi. á 3. hæð sem er 68.3 fm að stærð eru 3 herbergi (eitt skráð sem geymsla), baðherbergi, þvottahús og leikrými / sjónvarpshol.
Eignin getur verið laus til afhendingar fljótlega eftir kaupsamning.
Nánari lýsing:
Neðri hæð:
Gengið er inn í anddyri með flísum á gólfi og fataskáp. Úr anddyri er gengið í alrými sem samanstendur af eldhúsi og rúmgóðri stofu, parket á gólfi. Gengið er út á svalir úr stofu. Lítil snyrting er á neðri hæð flísalögð í hólf og gólf með upphengdu salerni og vaski. Rúmgott svefnherbergi er á hæðinni með parketi á gólfi og rúmgóðum fataskáp.
Efri Hæð:
Gengið er upp parketlagðan stiga á efri hæð. Hæðin skiptist í svefnherbergisgang þar sem eru 3 björt herbergi öll með fataskáp og þakgluggum og leikrými / sjónvarpshol með útgengi á svalir, þar innaf er baðherbergi og þvottahús. Parket er á öllum gólfum efri hæðar fyrir utan votrými en þar er flísalagt í hólf og gólf.
Rúmgóð og björt eign á vinsælum stað í neðri hluta Borgarness.
Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.
Eigindi eignar
Tegund | Fjölbýli |
Verð | 69.800.000 ISK |
Áhvílandi | 0 ISK |
Fasteignamat | 51.700.000 ISK |
Brunabótamat | 69.250.000 ISK |
Stærð | 162.7 fermetrar |
Herbergi | 4 |
Svefnherbergi | 4 |
Baðherbergi | 2 |
Byggingarár | 2007 |
Lyfta | Nei |
Bílskúr | Nei |
Garður | Nei |
Skráð | 10.10.2023 |