Lýsing eignar
Nes fasteignasala kynnir eignina:
Kirkjubraut 37, 300 Akranes íb. 201.
Um er að ræða 94,2 fm íbúð á annarri hæð í fjölbýlishúsi ásamt 12 fm geymslu í kjallara. Heildarstærð er því 106,2 fm skv. skráningu FMR.
Nánari lýsing:
Íbúðin skiptist í 3 svefnherbergi, baðherbergi og alrými sem samanstendur af eldhúsi, stofu og borðstofu.
Sameiginlegur inngangur af stigapalli er með matshluta 202 og þar í forstofu er salerni.
Anddyri er flísalagt. Þar á vinstri hönd er forstofuherbergi.
Alrými plastparket, eldhúsinnrétting með góðu skápa og vinnuplássi, helluborði og háf
Tvö herbergi á svefnherbergisgangi, plastparket á gólfum. Gengið er úr öðru herberginu út á svalir.
Baðherbergi flísar á gólfi og veggjum. Sturtuklefi og tengi fyrir þvottavél.
Húsið er múrviðgert að utan og er nú innréttað með 4 íbúðum ásamt aðstöðu fyrir Mílu á 2 hæð.
Stutt frá miðbæ Akraness, skólum og íþróttahúsi.
Vel staðsett eign á góðu verði.
Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.
Eigindi eignar
Tegund | Fjölbýli |
Verð | 40.000.000 ISK |
Áhvílandi | 0 ISK |
Fasteignamat | 37.100.000 ISK |
Brunabótamat | 57.250.000 ISK |
Stærð | 106.2 fermetrar |
Herbergi | 3 |
Svefnherbergi | 3 |
Baðherbergi | 1 |
Byggingarár | 1958 |
Lyfta | Nei |
Bílskúr | Nei |
Garður | Nei |
Skráð | 15.11.2023 |