Lýsing eignar
Nes fasteignasala kynnir eignina:
Stöðulsholt 38 sem er glæsilegt og vel skipulagt 181,5 fm parhús með bifreiðageymslu á einni hæð.
Húsið, sem er byggt úr forsteyptum einingum selst á byggingastigi 4, fullbúið að utan, fokhelt að innan og með grófjafnaðri lóð.
Áætlaður afhendingartími miðað við byggingarstig 4 er í janúar / febrúar 2024 eða eftir nánara samkomulagi.
Nánari lýsing:
Húsið, er vel skipulagt og skiptist þannig að íbúðin er 147,0 fm og bílskúr ásamt geymslu 35,5 fm.
Gengið er í anddyri og þaðan er innangengt í bifreiðageymslu. Stofa og eldhús mynda bjart og rúmgott alrými. Stofan er með stórum gluggum sem snúa í austur og suður, og þar er gengt út á lóð. Í hinum hluta hússins eru fjögur svefnherbergi, sjónvarpshol, baðherbergi og þvottahús. Að auki er í hjónaherbergi sér bað og snyrting. Lagnir fyrir heitann pott eru á lóð.
Eignin skilast máluð að utan, rúmlega fokheld að innan og með grófjafnaðri lóð. Hitalagnir verða komnar í gólfplötu og rafmagnstafla uppsett og tengd. Sjá nánar um skil í skilalýsingu seljanda.
Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.
Eigindi eignar
Tegund | Par/Raðhús |
Verð | 65.000.000 ISK |
Áhvílandi | 0 ISK |
Fasteignamat | 7.120.000 ISK |
Brunabótamat | 0 ISK |
Stærð | 181.5 fermetrar |
Herbergi | 5 |
Svefnherbergi | 4 |
Baðherbergi | 2 |
Byggingarár | 2023 |
Lyfta | Nei |
Bílskúr | Já |
Garður | Nei |
Skráð | 17.11.2023 |