Kirkjubraut 37

300 - Akranes

Lýsing eignar

Nes fasteignasala kynnir eignina:

Kirkjubraut 37, 300 Akranes íb. 201.
Um er að ræða 94,2 fm íbúð á annarri hæð í fjölbýlishúsi ásamt 12 fm geymslu í kjallara. Heildarstærð er því 106,2 fm skv. skráningu FMR.

Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning. Möguleiki á seljandaláni allt að 15% af kaupverði á 4% vöxtum til 15 ára.
 
Nánari lýsing: 
Íbúðin skiptist í 3 svefnherbergi, baðherbergi og alrými sem samanstendur af eldhúsi, stofu og borðstofu.
Sameiginlegur inngangur af stigapalli er með matshluta 202 og þar í forstofu er salerni.

Anddyri er flísalagt. Þar á vinstri hönd er forstofuherbergi.
Alrými plastparket, eldhúsinnrétting með góðu skápa og vinnuplássi, helluborði og háf
Tvö herbergi á svefnherbergisgangi, plastparket á gólfum.  Gengið er úr öðru herberginu út á svalir.
Baðherbergi flísar á gólfi og veggjum. Sturtuklefi og tengi fyrir þvottavél.
 
Húsið er múrviðgert að utan og er nú innréttað með 4 íbúðum ásamt aðstöðu fyrir Mílu á 2 hæð.
 
Stutt frá miðbæ Akraness, skólum og íþróttahúsi.
Vel staðsett eign á góðu verði. 

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.

Eigindi eignar

Tegund Fjölbýli
Verð 42.000.000 ISK
Áhvílandi 0 ISK
Fasteignamat 41.350.000 ISK
Brunabótamat 58.150.000 ISK
Stærð 106.2 fermetrar
Herbergi 3
Svefnherbergi 3
Baðherbergi 1
Byggingarár 1958
Lyfta Nei
Bílskúr Nei
Garður Nei
Greiðslubyrði* ------ ISK
Útborgun** ------ ISK
Skráð 18.02.2024