Fossatúnsland Birkilundur

311 - Borgarnes (dreifbýli)

Lýsing eignar

Nes fasteignasala ehf kynnir eignina:

Fossatúnsland Birkilundur, 311 Borgarbyggð.
Um er að ræða lítinn sumarbústað samtals 24,4 fm. að stærð ásamt 4,4 fm geymsluskúr. Húsið stendur á 5.612 fm eignarlóð úr landi Fossatúns, sem er utan skipulagðrar frístundabyggðar. 

Nánari lýsing:    
Sumarbústaðurinn skiptist í seturými en þar er jafnframt eldunaraðstað og svefnkrók. Salerni er í viðbygginu með sérinngangi. Húsið er tengt við rafmagn og viðurkennd rotþró er innan lóðar. Vatn var sótt í vatnsból við lóðarmörk en hefur ekki verið nýtt undanfarin ár.
 
Lóðin er vel í sveit sett skammt norðan við Lundarreykjadalsveg austan við brúna þegar komið er yfir Grímsá.  Mikill trágróður er á lóðinni bæði á lóðamörkum og einnig er lóðinni skipt í tvennt með runnum og trjám.  Gott útsýni er frá sumarbústaðnum.
Hér er um skemmtilega eignarlóð ræða sem býður upp á mikla möguleika fyrir þá sem vilja vera utan skipulagðra svæða með sumarhús.  Fossatún er miðsvæðis í Borgarfirði og því auðvelt að sækja afþreyingu til allra átta.

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.

Eigindi eignar

Tegund Sumarhús
Verð 15.900.000 ISK
Áhvílandi 0 ISK
Fasteignamat 11.600.000 ISK
Brunabótamat 4.840.000 ISK
Stærð 23.4 fermetrar
Herbergi 1
Svefnherbergi 0
Baðherbergi 0
Byggingarár 2003
Lyfta Nei
Bílskúr Nei
Garður Nei
Greiðslubyrði* ------ ISK
Útborgun** ------ ISK
Skráð 05.03.2024