Austurholt 8

310 - Borgarnes

Lýsing eignar

Nes fasteignasala kynnir eignina:

Austurholt 8 310 Borgarnesi sem er endaíbúð í raðhúsi á 3 pöllum ásamt kjallara og sambyggðri bifreiðageymslu byggt 1983. Eignin er skráð samtals 221,3 fm skv. skráningu HMS en þar af er  bifreiðageymsla 19.3 fm. Íbúðin er vel staðsett með fallegu útsýni.
 
Nánari lýsing   
 
Bílaplan er steypt. Þar meðfram er sólpallur með heitum potti. Gengið er í  forstofu á stigapalli.  Inn af forstofu á vinstri hönd er eldhús með  parket á gólfi.  Á efri hæð er stofa, herbergi og snyrting. Á neðri hæð eru 3 svefnherbergi baðherbergi  og Þvottahús.  Gengt er úr þvottahúsi út á lóð. Í kjallara. Þar eru 3 geymslur og baðherbergi með sturtu.
 
Anddyri  er flísalagt með fatahengi.
Eldhús  Rúmgóð innrétting gegnheil eik með góðum borðkrók. Eyja með helluborði og góðu skápaplássi.  Bakarofn í vegg og stæð í innréttingu  fyrir uppþvottavél.
Stofa og borðstofa björt og hátt til lofts. Parket á gólfi. Gengt úr stofu út á SA svalir.
4 svefnherbergi parket á herbergi á efri hæð og rúmgóðir fataskápar.  Herbergi á neðsta palli eru nýmáluð, 2 eru parketlögð og dúkur á einu þeirra. 
Baðherbergi flísar á gólfi í snyrtingu á efsta palli.  Flísar á gólfi og baðkar í baðherbergi á neðsta palli. Baðherbergi í kjallara er með sturtu og flísalagt í hólf og gólf.
Þvottahús á neðsta palli með físum á gólfi og útgengi út í garð.
Bílskúr steypt gólf og geymsluloft yfir hluta.
 
Járn á þaki er endurnýjað. Einangrun í lofti á efri hæð er endurnýjuð og loft klætt með nýjum loftapanel. Þá er neysluvatn í eldhús endurnýjað. Að öðru leyti er íbúðin er að mestu upprunaleg s.s., gluggar, gler, lagnir og ofnar.
 
Hér er um rúmgóða eign að ræða á eftirsóttum stað í Borgarnesi

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.

Eigindi eignar

Tegund Par/Raðhús
Verð 70.900.000 ISK
Áhvílandi 0 ISK
Fasteignamat 68.450.000 ISK
Brunabótamat 97.600.000 ISK
Stærð 221.3 fermetrar
Herbergi 5
Svefnherbergi 4
Baðherbergi 2
Byggingarár 1983
Lyfta Nei
Bílskúr Nei
Garður Nei
Greiðslubyrði* ------ ISK
Útborgun** ------ ISK
Skráð 19.04.2024