Borgarbraut 57

310 - Borgarnes

Lýsing eignar

Nes fasteignasala ehf kynnir eignina:

Borgarbraut 57, 310 Borgarnes.
Um er að ræða 3ja herbergja íbúð fyrir 50 ára og eldri á 6. hæð, merkt 0601, í 7 hæða lyftuhúsi, byggingarár 2018. Íbúðin er 94,2 fm að stærð skv. skráningu FMR. Þar af er sér geymsla í kjallara sem skráð er 10,7 fm. Svalir eru 6.3 fm mót suðri með svalalokun. Íbúðinni fylgir bílastæði í bílakjallara hússins. 
Eignin er laus til afhendingar fljótlega eftir kaupsamning.

Nánari lýsing:
Sameign: 
Flísalagt anddyri, lyfta og teppalagður stigagangur í sameign.  
Íbúð: Vinildúkur (parket) er á öllum gólfum utan votrýmis.
Forstofa: Rúmgóðir fataskápar.
Eldhús: Með smekklegri innréttingu og góðum AEG tækjum. 
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með vegghengdu salerni, sturtu og  innréttingu. 
Stofa: Björt og rúmgóð, gegnt út á suðursvalir með svalalokun. Mikið útsýni
Svefnherbergi: Eru 2, gott skápapláss í hjónaherbergi.
Geymsla: Er í sameign í kjallara, þar er einnig sameiginleg hjóla og vagnageymsla.                  
Bílastæði: Íbúðinni fylgir 1 stæði í upphituðum bílakjallara.

Áhugasömum kaupendum er bent á að kynna sér að komið hafa fram gallar varðandi gólfefni og leka með gluggum í fjölbýlishúsinu að Borgarbraut 57 og er málarekstur af þeim sökum yfirstandandi. nánari upplýsingar koma fram í yfirlýsingu,- og gögnum frá húsfélagi.

Hér er um mjög vel staðsetta íbúð að ræða, miðsvæðis í Borgarnesi. Örstutt í alla þjónustu og stórkostlegt útsýni um Borgarfjörð.

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is
Nes fasteignasala ehf. Borgarbraut 57, 310 Borgarnes.

 

Eigindi eignar

Tegund Fjölbýli
Verð 52.000.000 ISK
Áhvílandi 0 ISK
Fasteignamat 46.700.000 ISK
Brunabótamat 50.730.000 ISK
Stærð 94.2 fermetrar
Herbergi 3
Svefnherbergi 2
Baðherbergi 1
Byggingarár 2018
Lyfta
Bílskúr
Garður Nei
Greiðslubyrði* ------ ISK
Útborgun** ------ ISK
Skráð 19.04.2024