Lýsing eignar
Nes Fasteignasala kynnir eignina:
Kvistás 24, 311 Borgarbyggð. Um er að ræða fallegt sumahús í skipulagðri frístundabyggð í landi Syðri-Rauðamels í Borgarbyggð. Húsið stendur á fallegri 3.600 fm leigulóð sem liggur í útjaðri frístundabyggðarinnar.
Um er að ræða timburhús, með standandi klæðningu, 60.2 fm að stærð samkvæmt skráningu HMS, sem byggt var árið 2007. Húsið stendur á steyptum veggjum og er hitað með rafmagni. Að auki er 10 fm gestahús, stakstæð geymsla sem er einangruð að hluta og leikkofi fyrir börn á lóðinni. Gestahús og geymsla eru ekki inn í skráði fermetratölu fasteignarinnar. Eignin stendur á leigulóð með miklu útsýni.
Nánari lýsing.
Forstofa flísar á gólfi með góðum fataskápum
Baðherbergi flísalagt gólf innrétting og sturtuklefi
Svefnherbergi I parket á gólfi
Svefnherbergi II seturými sem hægt er að draga fyrir og nýta sem herbergi, parket á gólfi
Eldhús parket á gólfi. Mjög góð 2ja ára innrétting. Gott skápapláss, uppþvottavél og ísskápur helluborð og eldavél, allt innbyggt í innréttingu, fylgja.
Stofan er björt. Parket á gólfi og gólfsíðir gluggar. Góð kamína. Gengið er úr stofu út á sólpall með skjólveggjum.
Gestahús er 10 fm einangrað og klætt. Parket á gólfi, 2 kojur og rúm.
Geymsla einangruð að hluta með tvöfaldri hurð.
Leigusamningur er í gildi til ársins 2048 og er ársleiga kr. 102.670.- að auki greiðsist kr 5.000.- á ári til félags sumarhúsaeigenda á svæðinu.
Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.
Eigindi eignar
Tegund | Sumarhús |
Verð | 27.500.000 ISK |
Áhvílandi | 0 ISK |
Fasteignamat | 16.350.000 ISK |
Brunabótamat | 26.670.000 ISK |
Stærð | 60.2 fermetrar |
Herbergi | 2 |
Svefnherbergi | 0 |
Baðherbergi | 0 |
Byggingarár | 2007 |
Lyfta | Nei |
Bílskúr | Nei |
Garður | Nei |
Skráð | 10.07.2024 |