Lýsing eignar
Nes Fasteignasala kynnir eignina:
Dagverðarnes 2, Skorradalshreppi sem er sumarbústaður í skipulagðri frístundabyggð úr landi Dagverðaness.
Húsið stendur á góðum stað, neðan vegar, skammt frá Skorradalsvatni.
Um er að ræða vel byggðan sumarbústað sem byggður er árið 2000. Bústaðurinn er 52.2 fm að stærð samkvæmt skráningu HMS og stendur á 2500 fm eignarlóð.
Húsið er panelklætt á steyptum grunni. Góður sólpallur með 2 hliðum hússins og sambyggð geymsla. Húsið er hitað með rafmagni.
Nánari lýsing:
Að innan eru veggir klæddir panel í hálfa hæð, sem gefur fallegt yfirbragð. Gengið er af sólpalli inn í forstofu sem er með flísar á gólfi og góðum fataská. Þar innaf eru 2 svefnherbergi með parket á gólfi. Baðherbergi er með flísalagt gólf og veggi að hluta. Sturtuklefi er í baðherbergi og vaskur með lítilli innréttingu. Stofa og eldhús mynda rúmgott alrými. Parket á gólfum.
Hvít innrétting er í eldhúsi. Þar er eldavél með bakarofni. Góður borðkrókur. Góð kamína er í stofu og þaðan er gengið út á sólpallinn sem snýr að Skorradalsvatni.
Bústaðurinn er vel staðsettur, ofanvert við neðstu götu við vatnið, á endalóð sem er skjólsæl og gróin. Þaðan er útsýni út á Skorradalsvatn. Malbik er alla leið að afleggjara að svæðinu.
Misræmi er á skráningu HMS og raunstærðar eignarinnar. Byggingarleyfi var veitt fyrir 8,2 fm gestahúsi sem ekki er búið að byggja. Þá er bústaðurinn skráður 52,2 fm en raunstærð er mæld um 57 fm skv. upplýsingum frá seljanda.
Hér er um áhugaverða eign að ræða á eftirsóttum stað.
Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 8650350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.
Eigindi eignar
Tegund | Sumarhús |
Verð | 37.000.000 ISK |
Áhvílandi | 0 ISK |
Fasteignamat | 29.800.000 ISK |
Brunabótamat | 32.150.000 ISK |
Stærð | 60.399999809265 fermetrar |
Herbergi | 3 |
Svefnherbergi | 2 |
Baðherbergi | 1 |
Byggingarár | 2000 |
Lyfta | Nei |
Bílskúr | Nei |
Garður | Nei |
Skráð | 11.09.2024 |