Lýsing eignar
Eignin er seld með fyrirvara um fjármögnun.
Nes fasteignasala ehf kynnir í einkasölu eignina:
Vefarastræti 11, 270 Mosfellsbær. Um er að ræða mjög fallega 3 herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi og stæði í bílakjallara í nýlegu fjölbýlishúsi. Íbúðin er 85.2 fm að stærð skv. skráningu HMS.
Húsið er byggt 2017 og stutt er í skóla og leikskóla. Sólpallur og stór sameiginlegur garður með leiktækjum.
Nánari lýsing:
Gengið er í forstofu. Þar innaf mynda stofa og eldhús alrými. Í íbúðinni eru 2 svefnherbergi, góð geymsla fyrir miðju og baðherbergi.
Parket var endurnýjað 2021. Fallegt harðparket frá Birgisson er á öllum gólfum fyrir utan forstofu og baðherbergi.
Forstofa: Flísar á gólfi, góðir fataskápur
Eldhús og stofa: Eldhús og stofa er opið rými. Falleg eldhúsinnrétting með góðum tækjum.
Herbergi: Rúmgott hjónaherbergi með góðum skápum. Barnaherbergi með fataskáp.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, walk-in sturta, vegghengt salerni, góð innrétting og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla: Er innan íbúðar með stórum búrskáp.
Bílakjallari: Stæði í bílgeymslu fylgir eigninni.
Hjóla- og kerrugeymsla: Er í stakstæðri byggingu á lóðinni.
Verönd: Snýr mót suðvestri. Gengið er út á sólpall með skjólveggjum úr stofu.
Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.
Nes fasteignasala tekur ekki umsýslugjald af kaupendum.
Kostnaður kaupanda:
Stimpilgjald skv. 5. gr. laga nr. 138/2013 um stimpilgjald, 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% við fyrstu kaup m.v. 50% eignarhlut eða meira og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald kr. 2.700,- á hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá.
Engin umsýsluþóknun.
Eigindi eignar
Tegund | Fjölbýli |
Verð | 69.900.000 ISK |
Áhvílandi | 0 ISK |
Fasteignamat | 63.300.000 ISK |
Brunabótamat | 56.000.000 ISK |
Stærð | 85.2 fermetrar |
Herbergi | 3 |
Svefnherbergi | 2 |
Baðherbergi | 1 |
Byggingarár | 2017 |
Lyfta | Nei |
Bílskúr | Já |
Garður | Nei |
Skráð | 05.10.2024 |