Byggðarholt 1

311 - Borgarnes (dreifbýli)

Lýsing eignar

Nes fasteignasala kynnir eignina:

Byggðarholt 1, 311 Borgarbyggð.
Um er að ræða sumarbústað, 48.0 m2 að stærð samkvæmt skráningu HMS á 5.000 m2 leigulóð í skipulagðri frístundabyggð úr landi Galtarholts. 

Gengið er frá bílastæði um malarstíg að húsinu.  Húsið er panelklætt timburhús sem skiptist í lítið hol, setustofu og eldhús, 2 herbergi, baðherbergi og síðan er svefnloft yfir svefnherbergishluta þess.  Að auki er lítil sambyggð geymsla  við inngang hússins. Pallur er allt í kringum húsið á honum eru 2  geymslur. Vatn og hiti er í annarri geymslunni. Húsið er kynt með rafmagnsofnum. Korkflísar á eru á öllum gólfum hússins.

Eldhús og stofa mynda lítið alrými.  Gegnheil viðarinnrétting  er í eldhúsi með bakarofni, helluborði og ísskáp. Gengið er úr stofu út á sólpall með skjólveggjum sem snýr mót suðri
Baðherbergi er með sturtu, handlaug og lítilli innréttingu.
Gengið er úr holi upp tréstiga á svefnloftið. Þar er opnanlegur gluggi á stafni hússins.
Lóðin er vel staðsett, endalóð,  vaxin lyngi og kjarri,  gott aðgengi.

Lóðaleiga er uþb. kr. 150.000.- á ári.
Félag sumarhúsaeigenda er um frístundabyggðina og er árgjaldið kr. 20.000 á ári

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 og 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.

Eigindi eignar

Tegund Sumarhús
Verð 25.000.000 ISK
Áhvílandi 0 ISK
Fasteignamat 19.950.000 ISK
Brunabótamat 23.950.000 ISK
Stærð 48.2 fermetrar
Herbergi 3
Svefnherbergi 0
Baðherbergi 0
Byggingarár 1994
Lyfta Nei
Bílskúr Nei
Garður Nei
Greiðslubyrði* ------ ISK
Útborgun** ------ ISK
Skráð 14.10.2024