Lýsing eignar
Nes fasteignasala kynnir eignina:
Byggðarholt 1, 311 Borgarbyggð.
Um er að ræða sumarbústað, 48.0 m2 að stærð samkvæmt skráningu HMS á 5.000 m2 leigulóð í skipulagðri frístundabyggð úr landi Galtarholts.
Gengið er frá bílastæði um malarstíg að húsinu. Húsið er panelklætt timburhús sem skiptist í lítið hol, setustofu og eldhús, 2 herbergi, baðherbergi og síðan er svefnloft yfir svefnherbergishluta þess. Að auki er lítil sambyggð geymsla við inngang hússins. Pallur er allt í kringum húsið á honum eru 2 geymslur. Vatn og hiti er í annarri geymslunni. Húsið er kynt með rafmagnsofnum. Korkflísar á eru á öllum gólfum hússins.
Eldhús og stofa mynda lítið alrými. Gegnheil viðarinnrétting er í eldhúsi með bakarofni, helluborði og ísskáp. Gengið er úr stofu út á sólpall með skjólveggjum sem snýr mót suðri
Baðherbergi er með sturtu, handlaug og lítilli innréttingu.
Gengið er úr holi upp tréstiga á svefnloftið. Þar er opnanlegur gluggi á stafni hússins.
Lóðin er vel staðsett, endalóð, vaxin lyngi og kjarri, gott aðgengi.
Lóðaleiga er uþb. kr. 150.000.- á ári.
Félag sumarhúsaeigenda er um frístundabyggðina og er árgjaldið kr. 20.000 á ári
Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 og 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.
Eigindi eignar
Tegund | Sumarhús |
Verð | 25.000.000 ISK |
Áhvílandi | 0 ISK |
Fasteignamat | 19.950.000 ISK |
Brunabótamat | 23.950.000 ISK |
Stærð | 48.2 fermetrar |
Herbergi | 3 |
Svefnherbergi | 0 |
Baðherbergi | 0 |
Byggingarár | 1994 |
Lyfta | Nei |
Bílskúr | Nei |
Garður | Nei |
Skráð | 14.10.2024 |