Brákarbraut 10

310 - Borgarnes

Lýsing eignar

Nes fasteignasala ehf kynnir í einkasölu eignina Brákarbraut 10, 310 Borgarnes.

Um er að ræða fallega og vel skipulagða 3ja herbergja endaíbúð á efri hæð í 2. hæða  steinsteyptu einingahúsi, byggt 2008. Íbúðin er 102,9 fm skv. skráningu HMS. Þar af er geymsla 7,5 fm. Íbúðin  er vel staðsett í hjarta bæjarins með góðu útsýni yfir Brákarsund. 2 svefnherbergi, sérinngangur og mjög rúmgóðar suður svalir. Gólfhiti er í allri íbúðinni. 

Nánari lýsing:
Gengið er inn í anddyri. Úr anddyri er gengið inn í alrými sem samanstendur af eldhúsi, borðstofu og stofu.  Gengt er úr stofu út á svalirnar. Á svefnherbergisálmu eru 2 herbergi og baðherbergi.  Þvottahús er síðan inn af baðherberginu.  Gengt er úr báðum svefnherbergjum út á svalirnar sem liggja með allri íbúðinni.  Á jarðhæðinni er sér geymsla.  Þar er einnig sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.  Íbúðin er öll parketlögð utan þess að flísar eru á votrýmum.  Plis-Sol gardínur frá Álnabæ fyrir öllum gluggum fylgja íbúðinni.

Anddyri, flísar á gólfi, fataskápur.
Stofa er björt, parket á gólfum. Gengt úr stofu út á suður svalir.
Eldhús, parket á gólfum, góð innrétting með skenk sem nýtist að hluta sem eldhúsborð. Helluborð, háfur og innbyggð uppþvottavél.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf.  Upphengt salerni, sturta. Hvít innrétting.
Svefnherbergi eru parketlögð og fataskápar. Gengt úr báðum út á suður svalir.
Þvottahús flísalagt gólf og innrétting á vegg.      
 
Íbúðinni fylgir  7,5 fm geymsla á 1. hæð. Einnig er þar sameiginleg hjólageymsla.

Íbúðin er mjög vel um gengin og allt innbú getur fylgt við sölu eignarinnar eftir nánara samkomulagi.

Góð og smekkleg íbúð á góðum stað við Brákarsund. Stutt í skóla, íþróttahús og sundlaug.

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.

Nes fasteignasala tekur ekki umsýslugjald af kaupendum.
Kostnaður kaupanda:
Stimpilgjald skv. 5. gr. laga nr. 138/2013 um stimpilgjald, 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% við fyrstu kaup m.v. 50% eignarhlut eða meira og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald kr. 2.700,- á hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá.
Engin umsýsluþóknun.

Eigindi eignar

Tegund Fjölbýli
Verð 55.000.000 ISK
Áhvílandi 0 ISK
Fasteignamat 42.200.000 ISK
Brunabótamat 49.800.000 ISK
Stærð 102.9 fermetrar
Herbergi 3
Svefnherbergi 2
Baðherbergi 1
Byggingarár 2008
Lyfta Nei
Bílskúr Nei
Garður Nei
Greiðslubyrði* ------ ISK
Útborgun** ------ ISK
Skráð 15.10.2024